Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Guðmundur Einarsson
Upplýsingar
svg
2253635,8 m²
svg
0 herb.

Lýsing

FANNBERG FASTEIGNASALA EHF. sími: 487-5028.

JÖRÐIN HJARÐARBREKKA Í RANGÁRÞINGI YTRA.
Jörðin er 182,3 hektarar að stærð og aðkoma að henni er frá Oddavegi á Rangárvöllum.  Landið samanstendur af valllendi, mýrlendi, uppgræddum söndum og svo landi sem er minna gróið.  Ræktað land er skráð 43 hektarar.  Á jörðinni er 153,8 fm íbúðarhús byggt árið 2011.  Húsið er byggt úr timbri á steyptan sökkul og er klætt að utan með stálklæðningu.  Húsið telur;  anddyri, gang, sambyggt eldhús og stofu, fjögur svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.  Húsið er án eldhúsinnréttingar.

Eftirtalin útihús eru á jörðinni:
Fjós byggt úr steinsteypu árið  1956, stærð 142,2 fm.
Hlaða byggð úr steinsteypu árið 1954, stærð 84,8 fm.
Hlaða, járnklætt timburhús á steyptum sökkli byggt árið 166, stærð 113,3 fm.
Fjárhús, járnklætt timburhús á steyptum sökkli byggt árið 1977, stærð 31,3 fm.
Hesthús, járnklætt timburhús á steyptum sökkli byggt árið 1967, stærð 18 fm.
Fjárhús, járnklætt timburhús á steyptum sökkli byggt árið 1989, stærð 92,4 fm.

Jörðinni fylgir veiðréttur í Eystri Rangá og upprekstrarréttur á Rangárvallaafrétt.  Ennfremur veiðiréttur í Lambhagavatni sem er á mörkum jarðanna Hjarðarbrekku og Lambhaga.

Kaupendur greiða engin umsýslugjöld.

Allar nánari upplýsingar veita:
Guðmundur Einarsson lgf. gsm: 863-9528, netfang: gudmundur@fannberg.is
Ágúst Kristjánsson lgf. gsm: 893-8877, netfang: agust@fannberg.is

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

FANNBERG fasteignasala ehf

FANNBERG fasteignasala ehf

Þrúðvangi 5, 850 Hellu
phone
FANNBERG fasteignasala ehf

FANNBERG fasteignasala ehf

Þrúðvangi 5, 850 Hellu
phone