Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Þórir Helgi Sigvaldason
Katla Hanna Steed
Jórunn Skúladóttir
Þórunn Pálsdóttir
Vista
svg

44

svg

43  Skoðendur

svg

Skráð  12. sep. 2025

fjölbýlishús

Grensásvegur 1A 511

108 Reykjavík

86.900.000 kr.

981.921 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2522204

Fasteignamat

64.550.000 kr.

Brunabótamat

55.450.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2025
svg
88,5 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Hjólastólaaðgengi
svg
Lyfta
svg
Laus strax

Lýsing

Háborg fasteignasala ehf og Jórunn lögg.fasteignasali kynna Grensásvegur 1A, nýbygging í lyftuhúsi með bílakjallara. Glæsilega þriggja herbergja útsýnis íbúð á 5.hæð nr 11, stærð 88,5 fm, í 108 Reykjavík. Íbúðin er með svölum út úr stofu/alrými.  Geymsla fylgir eigninni 8,5 fm að stærð í kjallara. Eignin skipar geymslu, forstofu, hol, alrými eldhús borðstofa og stofa með útgengt út á svalir sem snúa inn í inngarðinn, 1. barnaherbergi, vinnurými/ skrifstofa og hjónasvíta með fataherbergi, baðherbergi með sturtu og vönduðum tækjum. Bílakjallari á 3. hæðum, hægt er að velja um fleiri en eina áskriftarleið eftir viðveru. Vandað efnisval og vinna. Íbúðin er fullbúin með gólfefnum og ljósakúplum. Afhendist við kaupsamning.

Helstu kostir lúxus íbúðar eru:
  • Gólfhiti (hitastýring í íbúðunum),
  • Gólfsíðir gluggar í íbúðinni
  • Innréttingar með dökkum eikar lituðum forstofuskápum
  • Eldhúsinnréttingin er með dökk eikar lituð með hvítum skápum
  • Inngangshurð yfirfelld 260 cm hæð, innihurðir allt að 260 cm
  • Stærstur hluti innveggja Hemga léttsteypusteinum
  • Íbúðin skilast með gólfefnum, parketi á gólfum Aroma D3882 10mm/1380/193
  • Baðgólf flísalögð með dökkum Amani Matt flísum 60x120cm
  • Innfeld lýsing/ljós í loftum í stofum, eldhúsi, böðum og forstofu
  • Innfelld blöndunartæki á baði og innfeld lýsing bak við spegil og í lofti
  • Neysluvatnið með forhitara frágengið og tengt blöndunartækjum
  • Staðsetning frábær rétt við Laugardalinn
  • Laus strax við kaupsamning
PANTIÐ SKOÐUN, erum til húsa að Grensásvegi 1. Sýnum með stuttum fyrirvara, Jórunn lögg.fasteignasali jorunn@haborg.is eða síma 845-8958

Nánar um íbúðina: þegar komið er inn í íbúðina er góður forstofuskápur. Baðherbergið er í holi við hjónaherbergið, með innbyggðum blöndunartækjum sturta og handlaug með skúffum undir og spegill fyrir ofan. Úr forstofu er komið inn í hol en þar blasir við glæsilegt alrými eldhús með eyju sem hægt er að sitja við og glæsilegar rúmgóðar bjartar stofur með útgengi á svalir er snúa að inngarði. Sér þvottahús innaf eldhúsi íbúðar með góðri vinnuaðstöðu. Hjónasvíta með gólfsíðum gluggum og fataherbergi. Einnig eru 1. barnaherbergi með gólfsíðum gluggum og fataskápum, ásamt vinnukrók ( skrifstofa). Eigninni fylgir geymsla í bílakjallara 8,5 fm. Aðgengi að bílakjallara á 3.hæðum.  

Húsið Grensásvegur 1: er nýbygging og samanstendur af 5. stigahúsum rúmlega 180 íbúð, ásamt verslunarhúsnæði á 1.hæð. Í stigagangi G1F eru 42. íbúðir. Bílakjallari á 3.hæðum sem nýtist öllum íbúðum ef vill, gegn vægu gjaldi. Kostnaður á hverja klukkustund virka daga er kr 250- frá kl 8:00-18:00, á virkum dögum er kr 150-. frá kl 18:00-8:00. Helgar er kr 120- á klukkustund. Sjá má á www.parka.is nánari upplýsingar um áskriftir.

Húsfélag: Í húsinu er starfrækt húsfélag, það er rekstrarfélag sem sér um udanumhalið. Ekki eru fyrirhugaðar eða yfirstandandi framkvæmdir á vegum húsfélags.

Um er að ræða glæsilega íbúð með svölum sem snúa inn í inngarðinn með útsýni. Gott birtuflæði, gólfhiti, aukin lofthæð, loftgæði góð, innbyggð lýsing og afhendist fullbúin með gólfefnum. Einstök staðsetning miðsvæðis þar sem stutt er í alla þjónustu og menningu.

Deilibílar. Stefnt er að því að deilibílar verði hluti af nýtískulegu og vistvænu umhverfi á Grensásvegi 1. Þeir verða aðgengilegir fyrir íbúa og starfsfólk fyrirtækja á lóðinni. Fyrirkomulag liggur ekki endanlega fyrir, en markmiðið er leigufyrirkomulag þar sem einfalt app verður notað fyrir aðgengi að bílunum og mögulegir notendur líklega forskráðir.

Lóðin: falleg hönnun á lóðinni þar sem fallegur garður og gott aðgengi fyrir alla er til að njóta saman. Snjóbræðsla undir helstu göngustígum. 
Staðsetning: Frábær staðsetnin rétt við Laugardalinn og einstök tenging við Skeifuna. Gott aðgengi af samgönum í nokkra metra fjarlægð. Öll þjónusta og verslun í göngufæri.

Nánari upplýsingar veitir Jórunn Skúladóttir Lögg. fasteignasali, í síma 845-8958, eða tölvupóstur jorunn@haborg.is. 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

img
Jórunn Skúladóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Háborg fasteignasala
Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
Háborg fasteignasala

Háborg fasteignasala

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
phone
img

Jórunn Skúladóttir

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
Háborg fasteignasala

Háborg fasteignasala

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
phone

Jórunn Skúladóttir

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík