Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Aðalheiður Karlsdóttir
Upplýsingar
svg
132 m²
svg
3 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
NÝLEG PENTHOUSE ÍBÚÐ Í HJARTA TORREVIEJA* *SVALIR OG ÞAKSVALIR MEÐ SJÁVARÚTSÝNI *200m FRÁ STRÖND* *LÍKAMSRÆKTARAÐSTAÐA, SAUNA OG SUNDLAUG* *LYFTA SEM GENGUR ALLA LEIÐ UPP Á ÞAKSVALIR*

Nýleg 3ja herb. íbúð á frábærum stað í miðbæ Torrevieja. Vönduð íbúð með glæsilegri sameign, á þaki húsins er að finna sameiginlega sólbaðsaðstöðu ásamt 35 fm sérþaksvölum sem fylgja íbúðinni. Í sameign er sundlaug, vel útbúin líkamsræktaraðstaða ásamt góðri sánu. Íbúðin er sérlega vel staðsett þar sem strönd og mannlíf eru í göngufæri. Einstakt tækifæri til að eignast góða íbúð á frábæru verði á besta stað í miðborg Torrevieja. 

Allar upplýsingar veitir:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is, sími 0034 615 112 869
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is, sími 8932495

Nánari lýsing:

Gengið er inn í forstofu með skápum, þar er einnig baðherbergi með sturtu. Tvö svefnherbergi með fataskápum og eitt þeirra með sér baðherbergi með sturtu. Bæði baðherbergin eru með hita í gólfi. Vel skipulagt alrými með opnu eldhúsi, borðstofu og stofu og útgengi út á svalir. Svalirnar eru 12 fm og rúmast vel, með frábæru útsýni. Eigninni fylgja 35 fm sér þaksvalir með stórkostlegu útsýni til sjávar og yfir miðborgina. Lyftan gengur alla leið upp á þak. Sturta og grillaðstaða á þaksvölum.

Mikið innifalið
Sundlaug
Góð líkasmræktaraðstaða
Sauna
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun
Falleg sameign

Byggingin er vel staðsett í hjarta Torrevieja, með alla þjónustu, verslanir, matarmarkaði og veitingastaði rétt við þröskuldinn. Stutt göngufæri á ströndina,  og promenaði meðfram ströndinni, götumarkaður sem er opinn allt árið og margt fleira skemmtilegt. 

Verð 390.000 Evrur. + kostn. (56.500.000ISK miðað við gengi 1E=145ISK)

Eignin er tilbúin til afhendingar

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með hagstæðu láni frá spænskum banka.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: nýleg eign, svalir, þaksvalir, air con, sundlaug, líkamsræktaraðstaða, sauna, strönd, miðbær,
Svæði: Costa Blanca, Torrevieja,

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.