Lýsing
Virkilega góð 5 herbergja endaíbúð á 1. hæð í 3ja hæða fjölbýlishúsi við Engihjalla 7 í Kópavoginum. Samkvæmt skráningu HMS er birt stærð eignarinnar 107,5 fm. Fjögur svefnherbergi - íbúðin er laus til afhendingar.
Nánari lýsing eignar: Komið er inn í forstofu og innaf forstofunni er geymsla. Á vinstri hönd við inngang er eldhús með snyrtilegri innréttingu með miklu skápaplássi og nær innréttingin alveg upp í loft, flísar á milli efri og neðri skápa, borðkrókur. Nýlegir gluggar og gler í eldhúsi. Björt og rúmgóð stofa með útgangi út á stórar svalir sem snúa til suðurs. Svalirnar eru nýlegar en þær voru brotnar niður og endurbyggðar árið 2020. Parketlagður svefnherbergisgangur. Fjögur svefnherbergi og eru skápar í þremur herbergjanna. Nýlegir gluggar og gler í einu herberginu. Baðherbergi með neðri skáp, Walk-in sturtu og handklæðaofni. Gólfefni íbúðar: parket og flísar á gólfum. Í sameign er sérgeymsla fyrir íbúðina, sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla.
VIRKILEGA RÚMGÓÐ OG VEL SKIPULÖGÐ ÍBÚÐ MEÐ FJÓRUM SVEFNHERBERGJUM Á GÓÐUM STAÐ MIÐSVÆÐIS Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU.
Endurbætur:
2004 - eldhúsinnrétting endurnýjuð ásamt gólfefnum í öllum herbergjum.
2016 - teppi á stigagangi endurnýjað.
2019 - dyrasími endurnýjaður.
2020 - suðurhlið hússins endurnýjuð ásamt vestur- og austurgöfflum (svalir og gluggar).
2022 - baðherberi endurnýjað.
2024 - þak málað og yfirfarið.
2024 - stigagangur málaður.
2025 - frárennslislagnir lagfærðar (fóðraðar).
Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða andri@landmark.is
Umsagnir viðskiptavina HÉR
Fylgdu mér á Facebook
Fylgdu mér á Instagram
Pantaðu FRÍTT söluverðmat á www.frittsoluverdmat.is
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat