Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þórólfsson
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Jason Kristinn Ólafsson
Sverrir Pálmason
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1962
svg
153 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Betri Stofan Fasteignasala og Hreiðar Levý, lögg. fasteignasali kynna fallega, bjarta og vel hannaða 153fm, 5 herbergja neðri sérhæð með sérinngangi og bílskúr í tvíbýlishúsi að Hraunbraut 40, 200 Kópavogi. Eignin er afar vel staðsett í rólegri og fallegri botnlangagötu. Góð aðkoma er að eigninni á hellulagða aðkeyrslu að bílskúr. Bílskúr er upphitaður og með rafmagn. Nýleg rafmagns bílskúrshurð á bílskúr Hæðin er afar vel skipulögð með rúmgóðum og fallegum stofurýmum, hálf opið við eldhús. Herbergjagangur er innaf borðstofu. Úr herbergjargangi er gengið í svefnherbergin 3, baðherbergi og rúmgott þvottahús. Útgengt er út í bakgarð úr þvottahúsi. Frábær staðsetning í fallegu og rólegu hverfi í vesturbæ Kópavogs þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, s.s. skóla, leikskóla, íþróttaaðstöðu, sundlaug Kópavogs o.fl.

KLIKKIÐ HÉR TIL AÐ SJÁ VIDEÓ AF EIGNINNI

Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða hreidar@betristofan.is


Ofnar, ofnalagnir og frárennslislagnir hafa verið endurnýjaðar. Þá var verið að klára að setja nýja glugga í stofu og klára múrviðgerðir á húsi. Baðherbergis gluggi endurnýjaður fyrir fáeinum árum. Þakjárn á bílskúr endurnýjað ´24. Fyrirhugað er að mála hús næsta sumar.

Eignin Hraunbraut 40 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 206-2647, birt stærð 153.0 fm þar af er bílskúr 28fm.

Fasteignamat eignar fyrir árið 2026 skv. HMS verður 105.500.000kr.

Nánari lýsing: 
Anddyri: Gengið inn um sérinngang. Upphengdir snagar og hilla. Flísar á gólfi.
Hol: Tengir saman eldhús, borðstofu, stofu og herbergjagang. Innbyggðir fataskápar í holi. Flísar á gólfi.
Eldhús: Rúmgott eldhús með góðu skápa, hillu og vinnuplássi. Gengið inn í úr holi. Opin lúga inn í borðstofu og stofu (Möguleiki á að opna alveg). Eldhúsinnrétting er með efri og neðri skápum ásamt opnum hillum. Innbyggður ofn, helluborð og upphengdur háfur. Aðstaða fyrir uppþvottavél og ísskáp.
Borðstofa: Opin við stofu og í góðri tengingu við eldhús og stofu. Útgengt út á rúmgóðan sérafnotareit með viðarverönd og þaðan í garð. Björt með fallegum stórum gluggum með útsýni út í fallegan og gróin garð.
Stofa: Rúmgóð og opin við borðstofu. Fallegt rými með stórum fallegum gluggum sem snúa út í garð og stórum fallegum glugga sem snýr til austurs. Fallegt og bjart stofurými.
Herbergjagangur: Úr holi er gengið inn í aflokaðan herbergjagang sem tengir saman svefnherbergin 3 ásamt baðherbergi og rúmgóðu þvottahúsi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Bað með sturtu, salerni ásamt baðinréttingu með efri og neðri skápum, opnum hillum, innfelldum vask og spegli fyrir ofan vask. Innbyggð lýsing í innréttingu fyrir ofan spegil.
Svefnherbergi I: Rúmgott með innbyggðum skápum. Gott skápapláss.
Svefnherbergi II: Gott barnaherbergi með fataskáp.
Svefnherbergi III: Gott barnaherbergi með fataskáp.
Þvottahús: Rúmgott þvottahús með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð ásamt skolvask. Útgengt út í bakgarð úr þvottahúsi. 

Bílskúr:
Rúmgóður með rafmagni, heitu og köldu vatni. Nýleg rafdrifin bílskúrshurð.
Bílastæði: Hellulagt bílaplan fyrir framan bílskúr. Rúmar marga bíla.
Gróðurhús: 12fm gróðurhús í garði. Sameign með efri hæð.

Garður: Rúmgóður sérafnotaflötur með viðarverönd. Fallegur aflokaður garður til suðurs með fallegum grónum trjám og grasfleti. Á austurhlið húss er viðarpallur með ca. 12fm gróðurhúsi sem tilheyrir eigninni. Garður á norðurhlið er hellulagður með þvottasnúrum.

Húsið: Húsið er steinsteypt, byggt árið 1962.
Lóð: 828fm leigulóð. Nýr lóðarleigusamningur við Kópavogsbæ var gerður 1.3.2017 til 50 ára við Kópavogsbæ.

Góð neðri sérhæð með bílskúr og sér viðarverönd útfrá borðstofu. Stórar og rúmgóðar stofur með fallegum stórum gluggum. Góð tenging við eldhús sem býður upp á gott geymslu og vinnupláss. Svefnherbergin 3 eru svo í sér álmu / gangi sem býður uppá ró og frið í herbergjum frá stofurými. Mjög rúmgott þvottahús með útgangi út í bakgarð. Frábær fjölskyldueign í fallegu og vinsælu hverfi í vesturbæ Kópavogs.

Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021, tölvupóstur hreidar@betristofan.is.





Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
11. maí. 2017
40.450.000 kr.
56.000.000 kr.
153 m²
366.013 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone