Lýsing
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 193,7fm. og þar af er geymsla skráð 13fm. og bílastæði í bílakjallara 20,5fm. Neðri hæð íbúðarinnar er skráð 124,4 fermetrar og efri hæð er skráð 69,4 fermetrar en gólfflötur er meiri, þar sem efri hæðin er að hluta til undir súð.
Fasteignamat fyrir árið 2026 verður 120.450.000kr.
Nánari lýsing:
Aðkoma að húsinu er mjög sjarmerandi og deilir þessi íbúð inngangi með aðeins einni annarri íbúð. Komið er inn í snyrtilega og vel um gengna sameign þar sem gengið er upp eina hæð í íbúðina og niður eina hæð í geymslu og bílakjallara.
Forstofa með fatahengi og flísum á gólfi.
Borðstofa björt og rúmgóð með mikillri lofthæð, stórum gólfsíðum gluggum og nýlegri rennihurð þar sem útgengt er út á svalir til suðurs.
Eldhús með mikillri lofthæð, hvít innrétting, steinn á öllum borðflötum, viðarklæðning á hluta veggja, helluborð, gufugleypir, ofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél og flísar á gólfi. Mikið útsýni til Esjunnar er úr eldhúsinu.
Stofa rúmgóð og björt með fallegu útsýni til norðurs, parket á gólfi. Útgengt er úr stofunni út á stórar svalir til norðurs.
Svefnherbergi á hæðinni eru þrjú, öll rúmgóð með fataskápum og parket á gólfi. Stórir og bjartir gluggar einkenna herbergin og einstakt útsýni er úr herberginu sem snýr til norðurs.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað með fallegum flísum, innréttingum, nýlegum hreinlætistækjum og vönduðum sturtuklefa.
Þvottahús/gestasnyrting hefur einnig verið endurnýjað með smekklegum hætti, flísar á gólfi, innréttingar og nýleg hreinlætistæki.
Gengið er upp stiga upp í efri hæð íbúðarinnar. Glæsilegur stálstigi setur mikinn svip á rýmið. Staðsettning stiga og hönnun er gerð til að rými efri hæðar nýtist sem allra best.
Hjónasvíta með stóru svefnherbergi, fataherbergi og skrifstofu innaf. Auðvelt væri að breyta fataherberginu í baðherbergi. Sérsniðnir skápar í fataherbergi og svefnherbergi fylgja með eigninni. Á gólfum er parket.
Í kjallara er bílakjallari en sérinngangur er fyrir íbúðina beint að stæði eignarinnar í bílakjallarann, í gegnum geymslu sem tilheyrir eigninni.
Geymslan er mjög rúmgóð, er skráð 13 fermetrar samkvæmt fasteignamati en er talsvert stærri þar sem tilhögun veggja geymslunnar er með öðrum hætti en fram kemur á upphaflegum teikningu. Geymslan nýtist mjög vel. Stæðið er 20,5 fermetrar.
Íbúðinni fylgir hluteild í sameiginlegri hjólageymslu og sameiginlegri dekkjageymslu inn af bílakjallara.
Í húsinu er öflugt húsfélag og er hugað vel að öllu viðhaldi hússins.
Hér er um að ræða einstaka eign sem nýtist sérlega vel. Eign sem vert er að skoða
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.