Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Vista
fjölbýlishús

Rökkvatjörn 1

113 Reykjavík

78.900.000 kr.

889.515 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2525179

Fasteignamat

68.350.000 kr.

Brunabótamat

60.200.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2023
svg
88,7 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555  - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 ** 

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel staðsett 94,6 m2, 3ja herbergja endaíbúð á efstu hæð (5. hæð) með glæsilegu útsýni í nýlegu lyftuhúsi (byggt 2023) ásamt stæði í bílageymslu við Rökkvatjörn 1 í Úlfarsárdal, 113 Reykjavík. Eignin er skráð 88,7 m2 þar af íbúð 80,3 m2 og geymsla 8,4. en auk þess er forstofan sem er ca 6 m2 ekki í fermetratölu eignarinnar.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi/þvottaherbergi. Sérgeymsla í sameign í kjallara. Sérmerkt bílastæði með hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl í bílageymslu. Svalir með rennihurð í suðurátt. Sér loftræstikerfi er í íbúðinni.  Í íbúðinni er free@home hússtjórnunarkerfi. Fallegar innréttingar, innbyggð lýsing og gott skipulag. Glæsilegt útsýni er frá íbúðinni. Góð staðsetning í fjölskylduvænu hverfi, stutt í þjónustu s.s. leikskóla, grunnskóla, íþróttastarf og fleira.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent

Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskápum og parketi á gólfi. Forstofan er ekki inni í fermetrastærð íbúðarinnar hjá fasteignaskrá HMS en hún er tæpir 6 m2.
Stofa/borðstofa er í opnu rými með eldhúsi. Parket á gólfi. Gengið er út á svalir í suðurátt.
Eldhús er með fallegri innréttingu og eyju. Í innréttingu er innbyggð uppþvottavél, ofn, helluborð og háfur. Gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu.
Svefnherbergi nr. 1 (hjónaherbergi) er með góðum fataskápum og parketi á gólfi. 
Svefnherbergi nr. 2 er með fataskáp og parketi á gólfi. 
Baðherbergi með sturtu, handlaug, innréttingu, handklæðaofn og vegghengdu salerni. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu. Flísar á gólfum og veggjum. Gluggi er á baðherbergi.
Sérgeymsla er í sameign, skráð 7,9 m2.
Bílastæði í lokuðum bílakjallara fylgir íbúðinni og er búið að setja upp hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl.

Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2026 er kr. 72.800.000,-

Verð kr. 78.900.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
8. mar. 2024
62.600.000 kr.
76.000.000 kr.
88.7 m²
856.821 kr.
29. sep. 2023
4.450.000 kr.
61.900.000 kr.
88.7 m²
697.858 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ