Lýsing
Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands 145 fm fm birt stærð, þar af er geymsla 4,5 fm.
Fasteignamat 2026 verður kr. 56.950.000
Nánari lýsing eignar
Forstofa með góðum fataskáp og nýlegu parketi.
Eldhús mjög glæsilegt og nýlega tekið í gegn, öll eldhústæki nýleg og fylgja þau með, tengi fyrir uppþvottavél og parket á gólfi.
Stofa/borðstofa með parket á gólfi og hurð út á góðar svalir.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðu skápaplássi, parket á gólfi. Baðherbergi er innaf hjónaherbergi.
Baðherbergi inn af hjónaherbergi með sturtu með nýlegum blöndunartækjum, fibo baðplötur á veggjum og flísar á gólfi.
Barnaherbergi eru þrjú í íbúðinni öll með parketi á gólfum og fataskápar í tveimur þeirra.
Baðherbergi (aðal) hefur flísar á gólfi, baðkar með sturtu og nýleg blöndunartæki við vask og fibo baðplötur á veggjum.
Þvottahús er rúmgott með flísum á gólfi.
Geymslur eru tvær sem fylgja íbúðinni, önnur staðsett innan íbúðar og hin á stigagangi á sömu hæð og íbúðin.
Hjólageymsla er í sameiginlegu rými
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.