Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson
Kjartan Hallgeirsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Daði Hafþórsson
Gunnar Helgi Einarsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Lilja Guðmundsdóttir
Jenný Sandra Gunnarsdóttir
Ingimar Óskar Másson
Kári Sighvatsson
Vista
svg

208

svg

140  Skoðendur

svg

Skráð  18. sep. 2025

fjölbýlishús

Dugguvogur 7

104 Reykjavík

75.900.000 kr.

955.919 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2511142

Fasteignamat

66.800.000 kr.

Brunabótamat

58.080.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2021
svg
79,4 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
Opið hús: 2. október 2025 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Dugguvogur 7, 104 Reykjavík, Íbúð merkt: 04 01 03. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 2. október 2025 milli kl. 13:00 og kl. 13:30.

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

79.4 fm fermetra 3ja herbergja íbúð á 1. hæð með rúmlega 30 fermetra sólpalli með útsýni í nýlegu fjölbýlishúsi við Dugguvog 7 í Reykjavík. Yfir 3 metra lofthæð. Vandað hús byggt af ÞG Verk. 

Gott alrými sem er opin stofa við eldhús. Útgengi úr stofu á rúmgóðan 30 fermetra pall. Tvö svefnherbergi, sér þvottahús, baðherbergi. Rúmgóð sérgeymsla í kjallara og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Sér bílastæði með rafbílahleðslu í lokuðum bílakjallara á góðum stað.

Nánari lýsing:
Forstofa: Með harðparketi á gólfi og skápum.
Stofa: Með harðparketi á gólfi og gluggum til vesturs. Stofa rúmar setustofu og borðstofu. Stofa er opin við eldhús.
Pallur: Rúmlega  30 fermetra sólpallur.
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og eldhúsinnréttingu frá Nobila (GKS). Innbyggður kæliskápur með frysti, innbyggð uppþvottavél.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili og falleg sprautulökkuð innrétting við vask með speglaskáp fyrir ofan. Handklæðaofn, upphengt salerni og útloftun.
Sér þvottahús: með flísum á gólfi og innréttingu. 
Svefnherbergi I : 12,5 fm. Með harðparketi á gólfi og skápum.
Svefnherbergi II : 7,7fm. Með harðparketi á gólfi og skápum.
Geymsla: Er staðsett á geymslugangi og er 9,3 fermetrar að stærð.
Bílastæði í lokuðu bílskýli: Vel staðsett. Myndavélavaktaður bílakjallari og aðgangsstýring (myndavélar) á bílakjallara.
Hjóla og vagnageymsla: Er staðsett við bílageymslu og með útgengi á baklóð hússins.

Hellulögð stétt fyrir framan hús með snjóbræðslu. Sameign er snyrtileg með flísum á sameiginlegri forstofu og teppi á stigagöngum. Lyklalaust aðgengi á flestum hurðum í sameign og kjallara. Nýlegt myndavélakerfi í bílakjallara. Myndavéladyrasími í íbúðum. Bílnúmeramyndavélar á aðalhurð í bílakjallara sem lesa bílnúmer við innakstur. Fallegur bakgarður sem er tyrfður lyngtorfi, garðbekkjum, kvöldlýsingu og leiktækjum.

Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í góðu nýlegu fjölskylduhverfi í Vogabyggð í Reykjavík. Leikskóli í göngufjarlægð. Verslun og þjónusta í næsta nágrenni ásamt frábærum hjóla- og gönguleiðum við Elliðaárvoginn. Mikil útivist allt í kring og fallegt umhverfi. Laugardalurinn í næsta nágrenni.


Nánari upplýsingar veita:
Alfreð Valencia  aðstoðarmaður fasteignasala í síma: 776-2150 eða alfred@eignamidlun.is
Kjartan Hallgeirsson löggiltur fasteignasali í síma 824-9093 eða kjartan@eignamidlun.is

 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
16. des. 2021
21.600.000 kr.
59.900.000 kr.
79.4 m²
754.408 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík