Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Þórey Ólafsdóttir
Vista
svg

153

svg

133  Skoðendur

svg

Skráð  19. sep. 2025

fjölbýlishús

Dugguvogur 9

104 Reykjavík

94.900.000 kr.

774.694 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2516601

Fasteignamat

91.750.000 kr.

Brunabótamat

83.380.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2023
svg
122,5 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

Nýtt á skrá! Dugguvogur 9 Reykjavík - Bókið skoðun!

--- Frábær 4ra herbergja fjölskylduíbúð með tveimur baðherbergjum og sérstæði í bílakjallara ---

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynna til sölu afar fallega og vel skipulagða 122,5 fermetra 4 herbergja íbúð á 2. hæð í nýlegu fjölbýlishúsi með lyftu við Dugguvog 9 í Reykjavík. Um er að ræða vandað og viðhaldslítið hús byggt af ÞG Verk. Skjólgóðar svalir til suðurs inn í bakgarð hússins. 

Íbúðin er með rúmgóðu alrými sem myndar stofu/borðstofu og eldhús með eldhúseyju. Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni, tvö baðherbergi og þvottaherbergi. Sér bílastæði í lokuðum bílakjallara á góðum stað. Útgengi úr stofu á svalir sem snúa til suðurs. Stór 18,6 fermetra sérgeymsla í kjallara og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Hellulögð stétt fyrir framan hús með snjóbræðslu. Sameign er snyrtileg með flísum á sameiginlegri forstofu og teppi á stigagöngum. Myndavéladyrasími í íbúðum. Tyrfð baklóð með hellulögðum stéttum og leiktækjum.

Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í góðu nýlegu fjölskylduhverfi í Vogabyggð í Reykjavík. Leikskóli í göngufjarlægð. Verslun og þjónusta í næsta nágrenni ásamt frábærum hjóla- og gönguleiðum við Elliðaárvoginn. Mikil útivist allt í kring og fallegt umhverfi. Laugardalurinn í næsta nágrenni.

Nánari lýsing:

Forstofa: Með harðparketi á gólfi og skápum.
Stofa: Með harðparketi á gólfi og gluggum til suðurs. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Stofa er opin við eldhús og með útgengi á svalir.
Svalir: Eru skjólgóðar og snúa til suðurs inn í bakgarð hússins. Svalagólf með harðvið á svalagólfi og innfelldri lýsingu í skyggni.
Eldhús: Með fallegri innréttingu frá Nobilia (GKS) og eyju. Bakaraofn, spansuðuhelluborð, innbyggð uppþvottavél og eyjuháfur. Stýranleg led-lýsing undir efri skápum.
Baðherbergi I: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili og innrétting við vask með speglaskáp fyrir ofan. Handklæðaofn, upphengt salerni og útloftun.
Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara og útloftun. 
Hjónaherbergi: Með harðparketi á gólfi, skápum og gluggum til austurs.
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til austurs.
Svefnherbergi III: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til suðurs.

Geymsla: Er staðsett á geymslugangi og er 18,6 fermetrar að stærð. Málað gólf.

Bílastæði: Er staðsett í upphituðum og lokuðum bílakjallara. Búið að leggja grunn fyrir rafhleðslukerfi í bílakjallara.

Hjóla og vagnageymsla: Er staðsett við bílageymslu og með útgengi á lóð hússins.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is


 

img
Heimir Hallgrímsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Lind fasteignasala ehf.
Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
img

Heimir Hallgrímsson

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
31. jan. 2024
87.650.000 kr.
88.900.000 kr.
122.5 m²
725.714 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone

Heimir Hallgrímsson

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur