Lýsing
FASTMOS kynnir: Vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á fyrstu hæð hæð með sérinngangi, svölum í suðvesturátt og bílastæði í bílageymslu við Frakkastíg 12A í miðbæ Reykjavíkur. Eignin er skráð 56,2 m2 , þar af íbúð 49,7 m2 og geymsla 5,8 m2. Íbúðin skiptist í forstofuhol ,eldhús, stofu, svefnherbergi og baðherbergi. Geymsla fylgir íbúðinni í sameign. Eigninni fylgir stæði í bílageymslu. Frábær staðsetning í hjarta miðbæjar Reykjavíkur. Stutt í alla helstu verslun og þjónustu. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax
Nánari lýsing:
Forstofuhol með flísum á gólfi, fataskáp og fatahengi.
Eldhús er opið inn í stofu með innréttingu með gashelluborði, viftu og bakarofni.
Stofa er með parketi á gólfi og útgengi á svalir í suðvesturátt.
Svefnherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi með flísum á gólfi, sturtuklefa, handlaug og salerni. Tengi fyrir þvottavél er á baðherbergi.
Geymsla í sameign með máluðu gólfi og hillum.
Bílastæði í bílageymslu fylgir íbúðinni, merkt B05.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Sameiginlegt gufubað er í sameign.
Sameiginlegt þvottahús í kjallara á vegum húsfélags.
Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2026 er kr. 61.050.000,-
Verð kr. 59.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.