Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2018
svg
229,9 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 23. september 2025 kl. 16:30 til 17:00

Lýsing

** Opið hús þriðjudaginn 23. september frá kl. 16:30 til 17:00 -  Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **
 
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Fallegt og fjölskylduvænt 229,9 m2 5 herbergja endaraðhús á tveimur hæðum ásamt bílskúr við Kvíslartungu 112 í Mosfellsbæ. Fallegt útsýni. Birt stærð eignarinnar er 229,9 m2, þar af er íbúðarhluti 205,4 m2 og sambyggður bílskúr 24,5 m2. Á efri hæð er stofa, borðstofa, eldhús, hjónaherbergi með fataherbergi, sjónvarpshol (hægt að breyta í svefnherbergi) og baðherbergi. Stórar svalir til suðvesturs með fallegu útsýni. Á jarðhæð eru 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi, geymsla, gangur, forstofa og bílskúr. Vel skipulögð eign á góðum stað í Leirvogstunguhverfi, stutt í leikskóla, vinsælar gönguleiðir og útivistarsvæði.  

** Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax **
 
Nánari lýsing:
# Efri hæð:
Stofa og borðstofa eru með parketi á gólfi. Úr stofu er útgengt á stórar svalir í suðvesturátt með fallegu útsýni.
Eldhús er með parketi á gólfi og hvítri L-laga eldhúsinnréttingu með góðu skápaplássi, innbyggðri uppþvottavél, blástursofni, helluborði og viftu. Gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingu.  
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er með parketi á gólfi og fataskápum. Inn af hjónaherbergi er fataherbergi (notað sem skrifstofa í dag). 
Sjónvarpshol er inn af stofu og með parketi á gólfi. Hægt að loka og breyta í fimmta svefnherbergið. 
Baðherbergi 1 er með flísum á gólfi og veggjum, innréttingu, handlaug, vegghengdu salerni, handklæðaofni og 'walk in' sturtu. Gluggi er á baðherbergi. 

# Neðri hæð: 
Svefnherbergi 2 er með með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 3  er með með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 4 er með með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi 2 er með flísum á gólfi og veggjum, innréttingu, handlaug, vegghengdu salerni, handklæðaofni og baðkari með sturtuaðstöðu. Gluggi er á baðherbergi.
Þvottahús er með innréttingu og flísum á gólfi. Í innréttingu er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Gluggi er á þvottahúsi. 
Geymsla með flísum á gólfi er inn af þvottahúsi. Gluggi er á geymslu.
Gangur er með parketi á gólfi. Útgengt í garð aftan við hús. 
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp. Úr forstofu er gengið inn í bílskúr. 
Bílskúr er með epxoý á gólfi og rafdrifinn bílskúrshurðaropnara. 
Steypt plan er framan við hús, upphitað á lokuðu kerfi. Lóð er að öðru leyti grófjöfnuð.
Hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl er við bílastæði.

Fyrirhugað fasteignamat fyrir 2026 er 125.200.00 kr.

Verð kr. 134.900.000,- 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
20. sep. 2018
6.600.000 kr.
61.500.000 kr.
229.9 m²
267.508 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ