Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Þórey Ólafsdóttir
Vista
raðhús

Hálsasel 28

109 Reykjavík

109.900.000 kr.

588.960 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2054953

Fasteignamat

95.650.000 kr.

Brunabótamat

95.150.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1980
svg
186,6 m²
svg
7 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Ragnhildur Finnbogadóttir & Hannes Steindórsson, kynna til sölu:
Bjart & vel skipulagt sjö herbergja enda raðhús á tveimur hæðum með rúmgóðum svefnherbergjum, bílskúr og verönd við Hálsasel 28 í Reykjavík.
Skráð stærð eignar skv. FMR er 186,6 fm, sem skiptist í efri hæð 72,4 fm, neðri hæð 92,8 fm og bílskúr 21,4 fm.
-Fasteignamat fyrir árið 2026 er 107.700.000 kr.

Allar nánari upplýsingar veita:
Ragnhildur Finnbogadóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 772-2791 eða adda@fastlind.is
Hannes Steindórsson, löggiltur fasteignasali, í síma 699-5008 eða hannes@fastlind.is


Eignin skiptist í:
Forstofu, 3-4 svefnherbergi, eldhús, tvær stofur, baðherbergi, sjónvarpsherbergi, gestasalerni, þvottahús, geymslu og bílskúr.

Nánari lýsing eignar:
Efri hæð:
Forstofa: er með flísalögðu gólfi og fataskáp.
Gestasalerni: með viðarlitaðri innréttingu með vaski og salerni, er staðsett inn af forstofu. Gólfið er flísalagt.
Eldhús: með hvítri og viðarlitaðri innréttingu með góðu skápaplássi. Bakaraofn í vinnuhæð og spanhelluborð með gufugleypi í innréttingu fyrir ofan. Gólfið er flísalagt.
Stofa: björt og rúmgóð með aukinni lofthæð, með parketi á gólfi.
-Útgengt er úr stofu út á rúmgóðar suður svalir.
Sjónvarpsherbergi: notalegt rými með góðu skápaplássi og parketi á gólfi.
-Hægt væri að loka rýminu og útbúa annað svefnherbergi.
Bílskúr: 21.4 fm. Hitalagnir eru undir hellulögðu bílastæði fyrir framan bílskúr. Í bílskúr er geymsluloft.

Neðri hæð:
Stofa:
með parket á gólfi.
-Útgengt er út á hellulagða suður verönd.
Baðherbergi: upphengd hvít innrétting með handlaug. Flísalögð sturta, baðkar, handklæðaofn og upphengt salerni. Gólfið er flísalagt.
Hjónaherbergi: rúmgott, með parketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi 1: með parketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi 2: með parketi á gólfi og fataskápum.
Geymsla: með harðparketi á gólfi. Er nýtt sem svefnherbergi.
Þvottahús: hvít innrétting með vinnuborði. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Gólfið er flísalagt.

Garður og lóð: hellulögð skjólsæl suður verönd er fyrir aftan hús og einnig er hellulögð verönd að framan.

Árið 2020 var þak og þakkantur endurnýjað.
Árið 2021 var öllum ofnum skipt út.
Húsið er nýmálað að utan.

Hálsasel 28 er vel staðsett eign í friðsælu og fjölskylduvænu hverfi í Seljahverfi. Tvö leiksvæði eru fyrir börn í sameign og stutt er í grunn- og leikskóla.

Allar nánari upplýsingar veita:
Ragnhildur Finnbogadóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 772-2791 eða adda@fastlind.is
Hannes Steindórsson, löggiltur fasteignasali, í síma 699-5008 eða hannes@fastlind.is


Kostnaður kaupanda vegna kaupa:  Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga  er  0,8%  og lögaðila  1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum,  oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.700 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Ljósmyndir

Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone