Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Vista
raðhús

Fellasmári 9

201 Kópavogur

144.900.000 kr.

936.047 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2231144

Fasteignamat

117.350.000 kr.

Brunabótamat

92.700.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1997
svg
154,8 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR 
FASTEIGNASALAN TORG KYNNIR Í SÖLU: Glæsilegt þriggja til fjögurra herbergja endaraðhús á einni hæð ásamt bílskúr, við Fellasmára 9, Kópavogi. Eignin er byggð 1997 og er skráð 154,8 fm að stærð, þar af íbúðarrými 130,7 fm og bílskúr 24,1 fm. Innra skipulagi eignar hefur verið breytt frá eldri teikningum. 
Eignin skiptist í anddyri, stofu, hol með útskoti, eldhús, stofu, tvö til þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr. Aukin lofthæð. Garðurinn er einstaklega stílhreinn með timburpöllum til norðausturs út frá eldhúsi og suðausturs fyrir framan/til hliðar við hús. Eignin er einstaklega stílhrein og var mikið tekin í gegn árið 2018. 
Fyrirhugað fasteignamat 2026 er 132.350.000
Allar nánari upplýsingar veitir Matthildur Sunna Þorláksdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 690-4966 eða matthildur@fstorg.is 

Nánari lýsing:
Komið er inn í anddyri. Úr anddyri er gengið inn í einstaklega rúmgott hol sem tengir rými eignar.
Stofa er rúmgóð og björt, eldhús er í sama rými, inndregið. Eldhús er með hvítri Kvik innréttingu og grárri borðplötu. Gott skápapláss, tækjaskápur, veglegur búrskápur og eyja með eldavél. Siemens tæki í eldhúsi, innbyggður ísskápur og ofnar í vinnuhæð.
Gengið er út á viðarpall til norðurs út frá eldhúsi.
Tvö rúmgóð svefnherbergi með skápum eru í húsi, en auðvelt ætti að vera að bæta við því þriðja.
Baðherbergi er með ljósgráum flísum í hólf og gólf, hvítri skúffueiningu undir vaski og skáp. Upphengt klósett. Baðkar og sturta. 
Þvottahús er vel skipulagt með góðri innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. Tæki eru í vinnuhæð.
Geymsluloft er fyrir ofan þvottahús.
Úr þvottahúsi er gengið inn í bílskúr, 24,1 fm.
Parket er á öllum rýmum húss nema í votrýmum þar sem eru flísar. 
Lóð er snyrtileg og plan fyrir framan hús er hellulagt og með snjóbræðslu að hluta til.

Að sögn seljenda hefur eftirfarandi verið gert 2018: 
- Skipulagi húss breytt, teikningar vegna breytinga liggja ekki fyrir
- Eldhús fært og endurnýjað. Neysluvatnslagnir endurnýjaðar
- Baðherbergi endurnýjað.
- Þvottahús endurnýjað. Neysluvatnslagnir endurnýjaðar
- Raflagnir endurnýjaðar að hluta

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á. 

TORG fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.
eignarhús. 

 

Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
14. jún. 2018
58.300.000 kr.
72.900.000 kr.
154.8 m²
470.930 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone