Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Upplýsingar
svg
Byggt 1987
svg
194,9 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 30. september 2025 kl. 16:30 til 17:00

Lýsing

** Opið hús þriðjudaginn 30. september frá kl. 16:30 til 17:00 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 ** 

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: 194,9 m2 einbýlishús á einni hæð með bílageymslu við Víðiteig 20 í Mosfellsbæ. Húsið er innst í botnlanga, steinsteypt og óvenju háreist með mikilli lofthæð. Bílageymslan er í dag notuð sem íbúðarrými. Eignin er skráð 194,9 m2, þar af einbýli 161,5 m2 og bílskúr 33,4 m2. Eignin skiptist í forstofu, arinstofu, borðstofu, eldhús, 4 svefnherbergi, hol , geymslu/þvottahús og sérstæðan bílskúr sem hefur verið innréttaður sem stúdíóíbúð. Gengið er úr arinstofu út á timburverönd  í suðausturátt í fallegum skjólgóðum garði, með nýlegu gróðurhúsi. Frábær staðsetning miðsvæðis í Mosfellsbæ, stutt í skóla, verslanir, heilsugæslu og alla þjónustu. Stutt er í náttúruna og fallegar gönguleiðir, útivistarsvæði við Varmá og Úlfarsfell.


Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent

Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Arinstofa er þremur þrepum niður frá holi, með parketi auk flísa við arinn. Útgengt er úr arinstofu út á hellulagða verönd þar sem gert er ráð fyrir útiarni.
Borðstofa er með parketi á gólfi.
Eldhús er með parketi á gólfi og U-laga innréttingu með eldhúsborði,  bakaraofni og viftu. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu. 
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er með parketi á gólfi og fataskápum. Útgengt er á timburverönd úr hjónaherbergi.
Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 3 er með parketi á gólfi. Í herberginu er stigi upp á geymsluloft sem er um 7 fermetra gólfflötur sem er ekki í fermetratölu eignarinnar.
Svefnherbergi 4 er með parketi á gólfi.
Geymsluloft er undir súð yfir hjónaherbergi sem eru um 21 fermetra gólfflötur sem er ekki í fermetratölu eignarinnar.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með innréttingu handlaug, salerni og baðkari með sturtuaðstöðu. Opnanlegur gluggi er á baðherbergi. 
Hol er með parketi á gólfi.
Þvottahús/geymsla er inn af forstofu með dúk á gólfi.
Bílageymslan er sérstæð og hefur verið innréttuð sem stúdíóíbúð með eldhúsi, stofu, svefnlofti og baðherbergi. Í eldhúsi er bakaraofn, helluborð og vifta. Á baðherbergi er innrétting með handlaug, salerni, sturtuklefi og tengi fyrir þvottavél.
Hiti er í hellulögðu bílaplani og gangstétt. Tengi fyrir hleðslustöð við bílaplan.
Garðurinn er gróinn með nýlegri timburverönd, markísu, pergólu og nýlegu gróðurhúsi.

Verð kr. 138.500.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ