Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Halla Unnur Helgadóttir
Elín Urður Hrafnberg
Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
Herdís Valb. Hölludóttir
Ingibjörg Reynisdóttir
Ellert Bragi Sigurþórsson
Daði Runólfsson
Vista
svg

1518

svg

1168  Skoðendur

svg

Skráð  26. sep. 2025

raðhús

Kolbeinsmýri 4

170 Seltjarnarnes

175.900.000 kr.

938.634 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2067448

Fasteignamat

138.800.000 kr.

Brunabótamat

102.000.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1990
svg
187,4 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
Opið hús: 2. október 2025 kl. 17:15 til 17:45

Opið hús: Kolbeinsmýri 4, 170 Seltjarnarnes. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 2. október 2025 milli kl. 17:15 og kl. 17:45.

Lýsing

Gimli fasteignasala og Ólafur Björn Blöndal löggiltur fasteignasali kynna: 

KOLBEINSMÝRI 4 - SELTJARNARNES - TVÍLYFT GLÆSILEGT RAÐHÚS

Um er að ræða mjög mikið endurnýjað alls 187,4 fm raðhús með þar af 29,5 fm innbyggðum bílskúr. 
Húsið er á tveimur hæðum og er mjög vel skipulagt og fjölskylduvænt með fjórum rúmgóðum svefnherbergjum, stórum og björtum stofum, fallegum afgirtum garði með sólpöllum bæði fyrir framan og aftan húsið.  Húsinu fylgir einnig sameiginlegt mjög vel hirt leiksvæði bakatil sem er í eigu húsanna sem umlykja það. Húsið hefur verið mjög mikið endurnýjað að utan sem innan á s.l. 10 árum. 
Bílastæði með snjóbræðslukerfi, hellulagt. 
Smelltu hér til að sjá myndband af eigninni

NÁNARI LÝSING:
Neðri hæðin:

Við inngang er hellulögð verönd með yfirbyggðu skyggni. 
Forstofa með parketi og plássgóðum fataskápum. 
Gestasnyrting með vaskinnréttingu. 
Þvottahús innaf forstofu með góðum skápum. 
Rúmgóð sjónvarpsstofa /herbergi með parketi á gólfi, Auðvelt að nýta sem herbergi. 
Stofurnar eru mjög rúmgóðar og bjartar með parketi og er borðstofan með björtum sólskála sem var allur endurnýjaður fyrir nokkrum árum og er þaðan gengið út á stóran sólpall til suðausturs. 
Setustofan er einu þrepi neðar plássgóð og með fallegum arni og parketi á gólfum. 
Eldhúsið er allt endurnýjað með hvílökkuðum innréttingum frá HTH, öll tæki endurnýjuð, eyja með spanhelluborði. Ljósar steinborðplötur á eyju og innréttingu, parket á gólfi. 
Efri hæðin:
Fallegur bogadreginn steyptur parketlagður stigi upp á efri hæðina. 
Í miðrými er sjónvarpsstofa með mikilli lofthæð og er þakgluggi sem veitir góða birtu. 
Tvö mjög rúmgóð barnaherbergi með parketi og fataskápum. 
Hjónaherbergi með góðum fataskápum og parketi. 
Rúmgott endurnýjað baðherbergi, flísalagt, baðkar innrétting, sturta og handklæðaofn.

Bílskúrinn er innbyggður 29,5 fm með rafmagnsopnara og gönguhurð ásamt góðu geymslulofti yfir hluta. 

Endurnýjun sem hefur átt sér stað s.l. 10 ár samkv. upplýsingum seljenda: 
Húsið allt nýmálað að utan. 
Þakið allt endurnýjað ásamt rennum og niðurföllum. 
Rafmagnstafla endurnýjuð. 
Neysluvatnslagnir endurnýjaðar ásamt forhiturum. 
Eldhús allt endurnýjað. 
Baðherbergi uppi allt endurnýjað. 
Gólfefni, parket endurnýjað. 
Glerskálinn í borðstofu ásamt þakglugga, endurnýjað.

Nánari upplýsingar veitir: Ólafur Björn Blöndal Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja og skipasali, í síma 6900811, tölvupóstur olafur@gimli.is eða gimli@gimli.is

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.

Gimli gerir betur...

Gimli fasteignasala

Gimli fasteignasala

Skipholt 35, 105 Reykjavík
phone
Gimli fasteignasala

Gimli fasteignasala

Skipholt 35, 105 Reykjavík
phone