Lýsing
Um er að ræða vel skipulagða og bjarta 80,9 fm 3ja herbergja íbúð á 2. hæð með 15,7 fm svölum í nýlegu lyftuhúsi við Hringhamar 11 í Hamranesi, 221 Hafnarfirði. Eignin hefur að geyma vandaðan frágang, góðar innréttingar og skemmtilegt alrými með útgengi á rúmgóðar svalir.
Eignin er merkt 02-08, fastanúmer 252-9162, ásamt tilheyrandi lóðar- og sameignarréttindum.
Íbúðin skiptist í: Forstofu/anddyri, gang, tvö svefnherbergi, baðherbergi með tengingu fyrir þvottavél og þurrkara, eldhús og stofu í opnu alrými, svalir og sérgeymslu innan sameignar. Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum er húsið Svansvottað og með sérstakt loftræstikerfi fyrir hverja íbúð, sem er hluti af vönduðum frágangi eignarinnar.
"Smelltu hér til að skoða myndband um eignina"
Helstu kostir:
- 3ja herbergja íbúð á 2. hæð
- Rúmgóðar og skjólgóðar 15,7 fm svalir
- Vandaður frágangur og góðar innréttingar
- Sérgeymsla innan sameignar
- Lyftuhús
- Svansvottað hús samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum
"Smelltu hér til að sækja söluyfirlit"
Eignin skiptist í:
Forstofu/anddyri, gang, hjónaherbergi, svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og stofu í sameiginlegu rými, svalir og sérgeymslu innan sameignar.
Lýsing eignar:
Forstofa / anddyri: Fataskápar og postulínsflísar á gólfi.
Gangur: Breiður gangur með postulínsflísum á gólfi.
Eldhús: Innrétting frá Axis, innbyggður ísskápur, uppþvottavél og ofn í vinnuhæð. Eldhúseyja með steinplötu frá S.G. Helgasyni. Útgengt er á svalir frá alrými.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa í opnu rými með eldhúsi. Postulínsflísar á gólfi.
Svalir: 15,7 fm. Rúmgóðar og skjólgóðar svalir með góðu plássi fyrir útihúsgögn.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með góðu skápaplássi og postulínsflísum á gólfi.
Svefnherbergi: Rúmgott herbergi með fataskápum og postulínsflísum á gólfi.
Baðherbergi: Innrétting frá Axis, upphengt salerni, walk-in sturta, handklæðaofn, skápar, flísar á veggjum og gólfi og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla: Sérgeymsla innan sameignar.
Sameign: Hjóla- og vagnageymsla ásamt aðstöðu fyrir minniháttar hjólaviðgerðir.
Gólfefni:
Á allri íbúðinni, utan baðherbergis, eru sérpantaðar ítalskar postulínsflísar, Marvel Shine – Calacatta Imperiale frá Vídd. Á baðherbergi eru flísar frá Parka.
Loftræsting:
Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum er í íbúðinni sérstakt loftræstikerfi með varmaendurvinnslu. Kerfið dregur inn ferskt loft í vistarverur og dregur loft út úr baðherbergi, eldhúsi og þvottaaðstöðu.
Umhverfi:
Í nágrenni eru skólar og leikskólar auk göngu- og hjólaleiða. Einnig er stutt í útivistarsvæði, þar á meðal Ástjörn, Hvaleyrarvatn og Helgafell.
Byggingaraðili:
MótX.
Nánari upplýsingar veitir:
Benedikt Ólafsson, löggiltur fasteignasali, meðlimur í Félagi fasteignasala, í síma 661 7788 eða á netfanginu bo@stofnfasteignasala.is.
Við hjá STOFN Fasteignasölu setjum þig í fyrsta sætið – með heilindum, metnaði og persónulegri þjónustu.
Það er okkur sannur heiður að fá að vera fasteignasalinn þinn.
STOFN Fasteignasala – Setjum þig í fyrsta sætið.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.