
Lýsing
Hverfisgata 83 er virðulegt fjölbýlishús kallað Bjarnaborgin þar sem lokaður inngarður og vernduð ásýnd hússins og vönduð vinnubrögð við uppgerð hússins sýna virðingu við sögu þess og Reykjavíkurborgar.
Um er að ræða íbúð merkt 0103 við Hverfisgötu 83, 3-4ra herbergja íbúð á tveimur hæðum með sérinngangi frá svölum/inngarði á báðar hæðirnar, íbúðin er staðsett annarsvegar á jarðhæð með sérinngangi frá svölum og hinsvegar í kjallar með inngangi frá inngarði.
Eignin er skráð 119,7 skv. Fasteignaskrá HMS, þar af er efri hæðin sem nú er 2ja herbergja íbúð 51,8 fm. og neðri hæðin 63,2 fm. stúdíó íbúð/tómstundarými með sérinngangi og salernisaðstöðu. Eignin er ónnréttuð/óklædd og án léttra milliveggja eins og er sem býðr upp á tækifæri til að innrétta hana að eigin smekk og þörfum.
Þessi eign býður upp á mikla möguleika varðandi nýtingu svo sem sér íbúðarrými á sitthvorri hæðinni, stór íbúð á 2 hæðum með innangengt milli hæðanna eða innrétta neðri hlutann sem vinnustofu/studio.
Ásett verð miðast við ástand eignarinnar eins og það er sýningu en mögulegt er að semja um að fá hana fullbúna eða lengra komna.
Í sameign er sérgeymsla merkt 01-0004 4,7 fm. fyrir íbúðina, sameiginlegt þvottahús, stór og aðgengileg vagna- og hjólageymsla og afar fallegur og skjólsæll inngarður.
Íbúar/eigendur geta sótt um íbúakort fyrir gjaldfrítt bílastæði skv. reglum Reykjavíkurborgar en einnig er bílastæðahúsið við Vitaorg stærsta bílastæðahús á höfuðborgarsvæðinu og almennt styst bið eftir langtíma leigu bílastæðis þar.
Húsið hefur fengið gott viðhald og endurbætur á undanförnum mánuðum og verður full málað að utan haust 2025, garður snyrtur og hellur lagaðar fyrir afhendingu eignanna.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali í s. 777-2882 eða thora@esjafasteignasala.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Esja fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.