Lýsing
Bókið skoðun hjá sölumanni ! Miklaborg kynnir: Þriggja herbergia 133,3fm. Endaíbúð á 4. hæð við Mánatún 3, með tveimur bílastæðum í kjallara. Eignin skiptist í forstofu, hjónaherbergi, barnaherbergi, þvottahús, baðherbergi, eldhús, stofu og borðstofu í opnu rými, svalir, geymslu í kjallara og tvö bílastæði í lokuðum bílakjallara. Nánari upplýsingar veitir Friðjón Örn Magnússon, lögg. fasteignasali í síma 692 2704 eða fridjon@miklaborg.is
Nánari lýsing:
Komið er inn í forstofu með flisum á gólfi og fataskáp.
Eldhús, stofa og borðstofa eru í opnu rými, Eldhús með parket á gólfi, fallegri eikar innréttingu, góð vinnuaðstaða og skápapláss.
Stofa / Borðstofa með parketi á gólfi og útgengi út á svalir.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, eikar innréttingu með vask, vegghengdu salerni, handklæðaofni og sturtuklefa.
Þvottahús með flísum á gólfi og góðri ljósri innréttingu með skolvask og plássi fyrir þvottavél og þurrkara.
Barnaherbergi með parketi á gólfi.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og stórum eikar fataskáp.
Tvö stæði, hlið við hlið, í bílakjallara fylgja sem og 9,1 fm geymsla í kjallara og hlutdeild í hjóla og vagnageymslu.
Nánari upplýsingar veitir Friðjón Örn Magnússon lögg. fasteignasali í síma 6922704 eða fridjon@miklaborg.is