Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Vista
fjölbýlishús

Liljugata 4

270 Mosfellsbær

64.900.000 kr.

928.469 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2517599

Fasteignamat

49.100.000 kr.

Brunabótamat

46.070.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2022
svg
69,9 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur
Opið hús: 1. október 2025 kl. 16:30 til 17:00

Opið hús: Liljugata 4, 270 Mosfellsbær, Íbúð merkt: 02 00 02. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 1. október 2025 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.

Lýsing

** Opið hús miðvikudaginn 1. október frá kl. 16:30 til 17:00 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **  

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 69,9 m2 2ja herbergja íbúð á jarðhæð með fallegu útsýni og sérinngangi af opnum stigagangi í nýlegu (byggt árið 2022) fjölbýlishúsi við Liljugötu 4 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 69,9 m2, þar af íbúð 64,8 m2 og geymsla 5,1 m2. Íbúðin skiptist í svefnherbergi, baðherbergi/þvottaherbergi, forstofu, eldhús og stofu. Sérgeymsla í sameign. Fallegar innréttingar frá Voke3. Stór timburverönd með skjólgirðingu og fallegu útsýni í suðvesturátt. Frábær staðsetning, stutt frá skóla, almenningssamgöngum og vinsælum útivistarsvæðum.

Smelltu hér til að fá sent söluyfirlit strax.


Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhús er með fallegri L-laga innrétting frá Voke3 með AEG tækjum. Í innréttingu er innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél, blástursofn og spanhelluborð ásamt viftu. LED lýsing er undir efri skápum. Skúffur eru í neðri hluta innréttingar og skápar í efri hluta innréttingar.
Stofan er rúmgóð með harðparketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á timburverönd í suðvesturátt með skjólgirðingu. 
Baðherbergi/Þvottaherbergi er með innréttingu, handklæðaofn, vegghengdu salerni og 'walk in' sturtu. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Svefnherbergi er með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Sérgeymsla í sameign. Er skráð 5,1 m2. Einnig fylgir íbúðinni hlutdeild í sameiginlegri vagna- og hjólageymslu. Bílastæði við húsið eru malbikuð og gönguleið að húsi hellulögð með snjóbræðslu. Búið er að setja upp hleðslustöðvakerfi frá ON. 

Annað: Um er að ræða fallegt og vel skipulagt fjölbýlishús á þremur hæðum við Liljugötu 4 í Mosfellsbæ. Húsið er teiknað af Teiknistofu Ingimundar Sveinssonar.  Húsið er byggt af Byggingafélaginu Bakka ehf sem er fjölskyldufyrirtæki með yfir 40 ára reynslu af byggingu íbúðarhúsa. Íbúðin er með vönduðum innréttingum frá Voke3, gólfefnum og hvítum yfirfelldum innihurðum Birgissyni ehf, hreinlætis og blöndunartækjum frá Tengi ehf. Innihurðir eru með felliþröskuldi nema á baðherbergi. 

Verð kr. 64.900.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
26. ágú. 2022
15.650.000 kr.
57.500.000 kr.
69.9 m²
822.604 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ