Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
raðhús

Vaðlatún 14

600 Akureyri

85.900.000 kr.

724.895 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2268139

Fasteignamat

80.500.000 kr.

Brunabótamat

56.550.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2004
svg
118,5 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
svg
Svalir
Opið hús: 19. október 2026 kl. 16:00 til 16:45

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur - 466-1600 - gunnar@kaupa.is

Vaðlatún 14 - Vel skipulögð 3-4ra herbergja raðhúsaíbúð á einni hæð með stakstæðum bílskúr, rúmgóðri verönd og heitum potti í Naustahverfi - stærð 118,5 m²


Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, geymslu sem nýtt er sem þriðja svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymsluloft og stakstæðan bílskúr.

Nánari lýsing:
Forstofan er með flísum á gólfi og opnu fatahengi.
Stofan er með parketi á gólfi og þaðan er gengið út á rúmgóða timburverönd til vesturs með heitum potti.
Eldhúsið er með parketi á gólfi og U-laga innréttingu með nýlegum plötum á milli skápa. Innbyggðri uppþvottavél, spanhelluborði og góðum búr- og tækjaskáp.
Svefnherbergin eru tvö samkvæmt teikningu, bæði rúmgóð með parketi á gólfi og stór fataskápur er í öðru þeirra.
Geymslan er innan íbúðar og er nýtt sem þriðja svefnherbergið. Þar er parket á gólfi og lúgan upp á loftið.
Baðherbergið var tekið í gegn 2026 og er það með flísum á gólfi og veggjum, innréttingu með vaski, walk-in sturtu, vegghengdu wc og handklæða ofni.
Þvottahúsið er inn af forstofu með flísum á gólfi, innréttingu með vaski, stæði fyrir þvottavél og þurrkara og opnanlegum glugga.
​Geymsluloft er yfir íbúðinni með góðri lýsingu og plötum á gólfi. Gengið er upp í það úr geymslunni innan íbúðar með fellistiga.
Bílskúrinn er 28,1 m² að stærð með flísum á gólfi, vaski, inngönguhurð og rafdrifinni innkeyrsluhurð.

Annað:
- Baðherbergið er alveg nýtt síðan febrúar 2026
- Eignin öll máluð að innan í febrúar 2026
- Skipt var um gólfefni á allri íbúðinni að frátaldri forstofu og þvottahúsi í febrúar 2026
- Plejd ljósakerfi er í alrými og baðherbergi
- Bílhleðslustöð var sett upp í bílskúr 2026
- Rúmgóð timburverönd til vesturs með rafmagnsheitum potti
- Mjög gott geymsluloft yfir íbúðinni með fellistiga
- Róleg staðsetning í Naustahverfi þar sem stutt í leik- og grunnskóla

Nánari upplýsingar veitir:
Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á gunnar@kaupa.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
18. jan. 2019
43.550.000 kr.
21.775.000 kr.
118.5 m²
183.755 kr.
27. maí. 2014
26.850.000 kr.
28.000.000 kr.
118.5 m²
236.287 kr.
15. des. 2006
18.050.000 kr.
21.500.000 kr.
118.5 m²
181.435 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone