Lýsing
Miklaborg kynnir bjarta og rúmgóða 3ja herbergja íbúð á 1. hæð með sér inngangi í Álfaborgum 17 í Grafarvogi. Samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu fylgir eigninni einkaafnotaréttur við svalainngang auk sérmerkts stæðis sem stendur eitt og sér stutt frá inngangi. Nánari upplýsingar veitir Friðjón Örn Magnússon löggiltur fasteignasali í síma 692 2704 eða fridjon@miklaborg.is
Húsið Álfaborgir 17 er steinsteypt fjölbýlishús á þremur hæðum med bárujárnsklæddu þaki og einum opnum stiga. Í húsinu eru samtals átta íbúðir. Sameign allra er inntök /pv., hjóla-/vagnarými, og sorpgeymsla.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Flísalögð með fatahengi og skáp, lítil geymsla fyrir innan með rennihurð.
Hjónaherbergi: Bjart og rúmgott, góðir skápar, parket á gólfi.
Svefnherbergi: Bjart og rúmgott, góðir skápar, parket á gólfi.
Stofa: Björt og rúmgóð með parketi á gólfi, útgengt á timburpall.
Eldhús: Snyrtileg hvít innrétting, flísar á milli efri og neðri skápa, bjartur og rúmgóður borðkrókur, parket á gólfi.
Baðherbergi: Hvít innrétting, flísar á gólfi og upp vegg við baðkar sem er með sturtuaðstöðu, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Sér geymsla í sameign, sameiginleg hjólageymsla er einnig í sameign auk sameiginlegrar útigeymslu.
Bílastæði: Sér bílastæði á bílaplani merkt 0101 á lóð
Virkilega skemmtileg og björt íbúð, góð staðsetning, stutt í verslunarkjarnann í Spönginni, stutt í leik-, grunn- og framhaldsskóla. Skemmtilegar gönguleiðir í næsta nágrenni.
Nánari upplýsingar veitir Friðjón Örn Magnússon löggiltur fasteignasali í síma 692-2704 eða fridjon@miklaborg.is