Lýsing
Bil merkt 04-0107 skv. teikningum og eignaskiptasamningi.
Nánari lýsing:
Lofthæð í bilinu er frá 2,9 metrum upp í 4 metra innkeyrsluhurð 2,6 metrar á hæð. Búið er að setja milliloft innst í rýmið þar sem lofthæð er mest.
Rýmið er upphitað með hitaveituofni.
Lóð er fullfrágengin, malbikuð og upplýst.
Salerniskjarni er sameiginlegur á svæðinu.
Bílastæði eru sameiginleg á lóðinni en bílastæði í séreign fylgja ákveðnum bilum, þá staðsett fyrir framan viðkomandi bil.
Vsk-kvöð er engin á bilinu.
Neysluvatn Blinduð tengi fyrir neysluvatn eru aðgengileg í hverju bili og eru þau upphituð með hitaveituofnum.
Húsin eru byggð úr samlokueiningum úr steinull og stáli, steingráum að utan og hvítum að innan. Gólf eru steypt og slípuð.
Sameiginleg sorpílat auk rafhleðslustöðva fyrir bíla. Húsfélag hefur verið stofnað um eignina sem sér um allan sameiginlegan rekstur.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.