Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ásdís Ósk Valsdóttir
Guðbrandur Jónasson
Ásdís Rósa Ásgeirsdóttir
Böðvar Reynisson
Sveinbjörn Rosén Guðlaugsson
Jóhanna K. Gustavsdóttir
Pétur Ísfeld Jónsson
Anna Laufey Sigurðardóttir
Vista
svg

288

svg

239  Skoðendur

svg

Skráð  10. okt. 2025

sumarhús

Klettagata 15

806 Selfoss

83.500.000 kr.

637.892 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2264280

Fasteignamat

52.750.000 kr.

Brunabótamat

73.400.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1997
svg
130,9 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Garður
svg
Sérinngangur
Opið hús: 25. október 2025 kl. 14:00 til 14:30

Lýsing

*** SÖLUSÝNING: KLETTAGATA 15, LAUGARDAGINN 25. OKTÓBER 2025 KL 14:00-14:30. JÓHANNA KRISTÍN GÚSTAVSDÓTTIR, LÖGGILTUR FASTEIGNASALI VERÐUR Á STAÐNUM OG VEITIR NÁNARI UPPLÝSINGAR Í SÍMA: 6989470 EÐA EMAIL: JOHANNA@HUSASKJOL.IS ***

SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SÖLUSÝNINGU OG SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR Klettagata 15.

Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign.
EF ÞÚ BÓKAR ÞIG FÆRÐU TILKYNNINGU EF SÖLUSÝNING FELLUR NIÐUR.
IF YOU BOOK A SHOWING, YOU WILL BE NOTIFIED IF IT’S CANCELLED.


Húsaskjól og Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Glæsilegan sumarbústað á einstökum stað við Klettagötu 15 við bakka Iðu/Hvítá í Laugarási í Biskupstungum. Húsið er skráð 96,9 fm að stærð og bílskúr/gestahús er 34,0 fm að stærð, samtals 130,9 fm. Lóðin er 3503 fm að stærð og er leigulóð. Hitaveita, heitur pottur og stutt í helstu náttúruperlur suðurlands og ýmsa aðra afþreyingu.


Húsið skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi en auðvelt er að bæta 3ja herberginu við, baðherbergi með sturtu og tengi fyrir þvottavél, sjónvarpsrými, eldhús, stofu-og borðstofu sem er eitt opið og bjart rými. Bílskúr/gestahús sem gert er ráð fyrir einu svefnherbergi en er óklárað og býður því upp á ýmsa möguleika.


SMELLTU HÉR TI AÐ SKOÐA VIDEO AF EIGNINNI


SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ UPPLÝSNGABÆKLING UM EIGNINA



Nánari upplýsingar veitir og bókar skoðanir Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-9470, netfang: johanna@husaskjol.is

Nánari lýsing á eign:
Komið er inn í rúmgóða forstofu með dökkum tvöföldum fata-og skóskápum, flísar á gólfi. Baðherbergi er innaf forstofu sem er með hvítri innréttingu og vask ofan á borðplötu, upphengdu klósetti og rúmgóðum sturtuklefa, þvottavél og útgengi út í garð. Rúmgott og notalegt sjónvarpshol með gegnheilu eikarplankaparketi. Eldhús, stofa-og borðstofa eru eitt opið og bjart rými og útgengi út á um 90 fm verönd sem umlykur húsið að stórum hluta og einstöku útsýni yfir Iðu/Hvítá, gegnheilt eikarplankaparket á gólfi. Eldhúsinnréttingin er hvít með rúmgóðri eyju sem er með innbyggðum vask, keramikhelluborði, bakaraofni og borðplötu úr gegnheilli eik.Svefnherbergin eru tvö, hjónaherbergið er mjög rúmgott og bjart með gólfsíðum gluggum og rennihurð út á veröndina, rúmgóður hvítur fataskápur og parket á gólfi. Heitur pottur á verönd sem er með einstöku útsýni út á ánna Iðu/Hvítá. Bílskúrinn/gestahúsið er með bílskúrshurð og einu svefnherbergi, sérinngangi og verönd sem er ekki fullklárað og býður því upp á ýmsa möguleika.

Hér er um að ræða glæsilegan og vel við haldin sumarbústað á einstökum stað við bakka Iðu/Hvítá á einum besta stað á Suðurlandinu þar sem hitaveita er til staðar og einungis klukkutíma akstur frá höfuðborginni og stutt í helstu náttúruperlur Suðurlands. Í Laugarási er hægt að kaupa sér grænmeti sem er rækað þar, Laugarás Lagoon og veitingastaðurinn Ylja eru í göngufjarlægð ásamt dýragarðinum Slakka. Stutt er að fara í golf á Flúðum og í Kiðabergi. Aðeins einn eigandi af húsinu. Sjón er sögu ríkari.

Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-9470, netfang: johanna@husaskjol.is


Fylgdu Húsaskjóli á TikTok


Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.


Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði


Húsaskjól fasteignasala

Húsaskjól fasteignasala

Hlíðasmára 2, 201 Kópavogur
Húsaskjól fasteignasala

Húsaskjól fasteignasala

Hlíðasmára 2, 201 Kópavogur