Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson
Kjartan Hallgeirsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Daði Hafþórsson
Gunnar Helgi Einarsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Lilja Guðmundsdóttir
Jenný Sandra Gunnarsdóttir
Kári Sighvatsson
Vista
fjölbýlishús

Hjallabraut 33

220 Hafnarfjörður

59.900.000 kr.

864.358 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2075572

Fasteignamat

50.300.000 kr.

Brunabótamat

43.200.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1989
svg
69,3 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Eignamiðlun og Ólafur H. Guðgeirsson, lgfs., kynna:  Vel skipulögð og björt tveggja herbergja 69,3 fermetra íbúð á annarri hæð í enda, auk 8,8 fermetra geymslu merkt 0214 á jarðhæð, samtals stærð séreignar 78,1 fermeter. Á Hjallabraut 33 er gott samfélag fólks yfir 60 ára aldri, þar sem er mötuneyti og ýmis þjónusta, aðgangur að samkvæmissal, leikfimissal, handavinnuherbergi, snyrtistofu, gestaherbergi o.fl er í húsinu. Hægt er að kaupa hádegismat alla virka daga og einnig hægt að panta mat um helgar. Auk þess sem stutt er í verslanir og heilbrigðisþjónustu. Sameiginlegar svalir, setustofur og önnur sameiginleg aðstaða einkennir húsið.

Allar upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs., í síma 663-2508 eða olafur@eignamidlun.is

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT

Þegar gengið er inn í húsið er komið inn í björt og skemmtileg sameiginleg rými þar sem eru setustofur, bækur og möguleiki til samveru. Íbúðin er síðan í suðurenda annarrar hæðar hússins þar sem er litil umgengni og gott næði.
Komið er inn í rúmgóða forstofu þar sem er stór fataskápur, flísar á gólfi. Við tekur hol þar sem er gengið öll önnur rýmir eignarinnar. Baðherbergi er strax á hægri hönd, svefnherbergi næst til hægri og opið til stofu. Stór gluggi er á heilum vegg í  holinu og er rýmið bjart og skemmtilegt. Opið er milli holsins og alrýmis, þar sem er eldhúsinnrétting og borðkrókur til vinstri, stofa til hægri með stórum glugga út að lóð og dyrum út á rúmgóðar lokaðar svalir með skemmtilegu útsýni yfir áospillt hraun milli húsanna og við enda þessa húss. Á gangi við dyr inn í íbúð eru stórar opnar sameiginlegar svalir. Svefnherbergið er rúmgott og bjart, með skáp á heilum vegg og gluggum í tvær áttir. Baðherbergi er sömuleiðis rúmgott með glugga, sturtuklefa þar sem eru flísar á vegg, lítilli innréttingu og góðu plássi fyrir þvottavél og þurrkara.
Parkett er á gólfum í holi, alrými og herbergi, flísar á eldhúsi og forstofu. Öryggisdúkur á baðherbergi.
Svalir eru lokaðar með glerlokun, og með flísum á gólfi. Á jarðhæð er 8,8 fermetra geymsla.

Björt og falleg íbúð fyrir eldra fólk, í mjög eftirsóttu umhverfi.

Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum - kr. 2.500 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegur 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
2. mar. 2017
21.450.000 kr.
34.000.000 kr.
69.3 m²
490.620 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík