Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Fallegt og vel skipulagi 165,7 m2 endaraðhús með innbyggðum bílskúr á stórri hornlóð við Hrafnshöfða 12 í Mosfellsbæ. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, sjónvarpshol, 4 svefnherbergi, baðherbergi og bílskúr með þvottaaðstöðu. Eignin er skráð 165,7 m2, þar af raðhús 141,4 m2 og bílskúr 24,3 m2. Stór timburverönd í suðvesturátt, bakgarður og hellulagt bílaplan með snjóbræðslu. Kaldur geymsluskúr er á lóð.
Vinsæl staðsetning, stutt í Lágafellskóla, leikskólann Hulduberg og Lágafellslaug. Einnig er mjög stutt niður á golfvöll Mosfellsbæjar. Seljandi skoðar skipti á ódýrari eign í sama hverfi.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
Samkvæmt upplýsingum frá seljanda var skipt um pappa og bárujárn á þaki árið 2017 - 2018. Kaldavatnslagnir voru fóðraðar árið 2021 - 2022.
Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskápum og flísum á gólfi. Úr forstofu er innangengt inn í bílskúrinn.
Sjónvarpshol er inn af forstofu með parketi á gólfi.
Stofa/borðstofa er í opnu björtu rými og með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á timburverönd í bakgarði.
Eldhús er með innréttingu og borðkrók, flísar á gólfi. Í innréttingu er ofn, helluborð og innbyggður ísskápur. Gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með vegghengdu salerni, innréttingu, sturtu og baðkari. Gluggi er á baðherbergi.
Hjónaherbergi er með fataskápum og parketi á gólfi. Úr hjónaherbergi er gengið út á timburverönd í bakgarði.
Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi. Úr herbergi er aðgengi að geymslulofti.
Svefnherbergi nr. 3 er með parekti á gólfi.
Svefnherbergi nr. 4 er með parketi á gólfi.
Bílskúr er með steyptu gólfi, gúmmímottum og innréttingu. Í innréttingu er gert ráð fyrir þvottavél og þurkkara. Gott geymsluloft er yfir hluta af bílskúrnum.
Fyrirhugað fasteignamat 2026 er 127.150.000 kr.
Verð. kr. 139.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.