Lýsing
Helgafell fasteignasala kynnir til sölu fallegt og vel skipulagt 224,4 m² endaraðhús á tveimur hæðum við Friggjarbrunn 34 í Úlfarsárdal. Húsið er byggt árið 2008 og stendur á fjölskylduvænum stað með grænu svæði aftan við húsið. Eignin býður upp á fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi og bjart alrými þar sem aukin lofthæð, stórir gluggar og útsýni til suðurs.
Stórar suðursvalir við alrýmið og timburverönd með heitum potti og skjólveggjum við snyrtilegan, gróinn garð. Gólfhiti er í öllu húsinu og innfelld lýsing í flestum rýmum. Innangengt er í bílskúr og hellulögð innkeyrsla rúmar þrjá bíla.
Helstu kostir eignarinnar:
- Fjögur svefnherbergi, þar af hjónaherbergi með fataherbergi.
- Bjart og opið alrými með aukinni lofthæð og gólfsíðum gluggum.
- Tvö baðherbergi, bæði með sturtu og annað með baðkari.
- Suðursvalir og suðurverönd með heitum potti og skjólveggjum.
- Innbyggður 31,3 m² bílskúr með gólfhita.
- Stutt í leik- og grunnskóla, íþróttaaðstöðu Fram og fallega náttúru.
Á efri hæð eru forstofa, eldhús, stofa og borðstofa í opnu rými, baðherbergi, búr/geymsla og bílskúr.
Á neðri hæð eru fjögur svefnherbergi, rúmgott fataherbergi við hjónaherbergi, aðalbaðherbergi, rúmgott þvottahús og geymsla.
Nánari lýsing – efri hæð
Forstofa: Rúmgóð og björt forstofa með stórum gluggum, þreföldum hvítum fataskáp og dökkum gólfflísum. Innangengt er í bílskúr úr forstofu.
Eldhús: Bjart og fallegt eldhús sem tengist stofu og borðstofu í opnu alrými. Hvít L-laga innrétting ásamt stórri eyju með marmara. Keramikhelluborð, stálháfur og ofn í vinnuhæð. Dökkar flísar eru á gólfi.
Stofa og borðstofa: Rúmgott og bjart alrými þar sem aukin lofthæð og gólfsíðir gluggar gefa góða birtu. Útsýni er til suðurs að Reynisvatnsási og frá borðstofu er útgengt á stórar suðursvalir. Innfelld og óbein lýsing í lofti skapar hlýlega stemningu.
Baðherbergi: Við forstofu er rúmgott baðherbergi með sturtu, upphengdu salerni og hvítri skúffuinnréttingu undir vaski. Dökkar gólfflísar og hvítar veggflísar.
Búr/geymsla: Við hlið baðherbergis er búr/geymsla með hillum og dökkum gólfflísum.
Bílskúr: Innbyggður bílskúr, skráður 31,3 m², með innangengi úr forstofu. Flísar á gólfi, gólfhiti, vinnuvaskur og rafdrifinn hurðaropnari.
Nánari lýsing – neðri hæð
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með ljósu harðparketi og vel útbúnu fataherbergi.
Svefnherbergi II: Rúmgott herbergi með L-laga glugga, tvöföldum fataskáp og ljósu harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi III: Gott herbergi með glugga til suðurs og ljósu harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi IV: Stórt herbergi með tvöföldum fataskáp og gólfsíðum gluggum til suðurs. Úr herberginu er gengið út á nýlega timburverönd með heitum potti og nýlegum skjólveggjum.
Aðalbaðherbergi: Rúmgott baðherbergi með dökkum flísum, stórri sturtu með glervegg, hornbaðkari og upphengdu salerni. Góð innrétting með fjórum skúffum undir vaski og tveimur speglaskápum á vegg. Handklæðaofn og flísalagður bekkur við sturtu.
Þvottahús: Stórt þvottaherbergi með flísum á gólfi, innréttingu með hirslum og vinnuvaski. Aðstaða er fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Geymsla: Inn af þvottaherbergi er geymsla.
Lóð og umhverfi
Lóðin er fullfrágengin með snyrtilegum gróðri, nýlagðri timburverönd, skjólveggjum og heitum potti. Stórar suðursvalir tengjast alrými efri hæðar. Framan við húsið er hellulögð innkeyrsla með bílastæðum fyrir þrjá bíla.
Eignin er á fjölskylduvænum stað í Úlfarsárdal, með grænu svæði aftan við húsið og stutt í leik- og grunnskóla, íþróttaaðstöðu Fram og fallega náttúru.
Bjart og rúmgott fjölskylduheimili með góðu skipulagi og fallegri lóð.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Helgafell fasteignasala - sími 566 0000
Rúnar Þór Árnason, lgf., runar@helgafellfasteignasala.is
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.