Lýsing
Eignin er skráð neðri hæð 82,9fm., efri hæð 66,6fm og bílskúr 25,1fm.
Eignin Skiptist í stofu/borðstofu, eldhús, fjögur svefnherbergi, þvottahús, baðherbergi, gestasalerni og bílskúr ásamt geymsluskúr.
Innréttingar, innihurðir og skápar eru sérsmíðaðar og spónlagðar með Öl (elri).
Stór verönd með heitum pott og hellulagt bílaplan með snjóbræðslu eru við eignina.
Neðri hæð - stofa/borðstofa, eldhús, svefnherbergi, þvottahús og gestasalerni.
Anddyri: Parrket/vynil dúkur á gólfi og góður skápur.
Gestasalerni: Á hægri hönd úr anddyrinu er gestasalerni með handlaug og innréttingu.
Hjónaherbergi: Rúmgott með parket/vynil dúk á gólfi. Rúmgóðir skápar.
Þvottahús: Rúmgott, flísar á gólfi, innrétting fyrir þvottavél og þurrkara ásamt skápum og ræstivask.
Stofa/borðstofa: Gott alrými, 6mm. endingargott parket/vynil dúkur á gólfi sem hefur verið lagt yfir eikarparket. Útgengt er út á suður-verönd úr stofunni.
Eldhús: Opið eldhús við stofu, upprunaleg, snyrtileg og góð innrétting úr elri. Flísar milli efri og neðri skápa, span helluborð, ofn í vinnuhæð, uppþvottavél og gott skápapláss.
Efri hæð, hol, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Gólfflötur á efri hæð er u.þ.b. 12fm. meiri en 66,6fm., þar sem hluti af efri hæðinni er undir súð.
Stigi upp á efri hæðina, parket/vynil dúkur á gólfi lagt yfir eikarparket. Undir stiga er lítil geymsla.
Komið er upp í rúmgott hol sem í dag er nýtt sem sjónvarpsherbergi.
Þrjú rúmgóð svefnherbergi með parketi/vynil dúk á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi, upphengt salerni, baðkar, fín innrétting í góðu lagi og sturtuklefi.
Við hlið baðherbergis er lítil geymsla með urð fram í holið.
Bílskúr: 25,1fm., vaskur með heitu og köldu vatni, innrétting og skápur. Bílskúrshurðaropnari. Ljósleiðari.
Úr bílskúrnum er innangengt inní um 15fm. óeinangraða geymslu sem er ekki í fm. tölu hússins Úr geymslunni er svo útgengt út á pallinn/veröndina.
Fallegur, afgirtur pallur til suðurs. Í framhaldi af pallinum er svo búið að helluleggja garðinn sem þarfnast ekki mikillar umhirðu. Falleg blómabeð og ekkert gras til að slá.
Fyrir framan bílskúr er hellulagt plan með snjóbræðslu.
Fallegt, staðsteypt og steinað með kvarsi fjölskylduhús á mjög eftirsóttum stað í Mosfellsbæ. Skóli, leikskóli og sundlaug í næstu götu. Golfvöllurinn í göngufæri eða í ökufæri á golfbíl.
Börn þurfa ekki að ganga yfir götu á leið í skólann.
Linkur á teikningar hér.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Helgafell fasteignasala - sími 566 0000
Rúnar Þór Árnason, lgf., sími: 775 5805 / email: runar@helgafellfasteignasala.is
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.