Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Elín Káradóttir
Hrönn Bjargar Harðardóttir
Vista
svg

44

svg

40  Skoðendur

svg

Skráð  28. okt. 2026

sumarhús

ÚLFSSTAÐASKÓGUR 37

701 Egilsstaðir

48.000.000 kr.

888.889 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2316132

Fasteignamat

28.950.000 kr.

Brunabótamat

36.850.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2008
svg
54 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur

Lýsing

BYR fasteignasala kynnir í einkasölu ÚLFSSTAÐASKÓGUR 37, 701 Egilsstaðir. Sumarhús/heilsárshús í Úlfsstaðaskógi 37, sunnan/innan við Egilsstaði. 
Húsið er staðsett í u.þ.b. 10 mínutna fjarlægð frá Egilsstöðum. Smellið hér fyrir staðsetningu.

Húsið er timburhús, hæð og svefnloft byggt árið 2008, hæð 51.4  m², svefnloft 21.1  m², skráð flatarmál 54.0 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag: Anddyri, alrými með stofu, eldhúsi og forstofu, tvö herbergi, baðherbergi, geymsla og svefnloft. 

Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 483 5800 |

Nánari lýsing: 
Anddyri er opið við alrými, harðparket á gólfi, þaðan liggur stigi upp á svefnloft, gluggi er á svefnlofti. 
Alrými með stofu, eldhúsi og forstofu, harðparket á gólfi, tvöfaldur skápur er í forstofu, útgengt er út á timburverönd úr stofu. 
Eldhús, innrétting, eldavél, stálvaskur, gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu, borðkrókur.
Herbergi I, harðparket á gólfi. 
Herbergi II, harðparket á gólfi, veggfast rúm. 
Baðherbergi, dúkur á gólfi, vaskinnrétting, speglaskápur, salerni og sturta, handklæðaofn og gluggi. 
Geymsla, harðparket á gólfi. 

Innbú fylgir með bústaðnum utan persónulegra muna. 

Úlfsstaðaskógur 37 er sumarhús/heilsárshús, timburhús á steyptum undirstöðum, gólf er timburgólf. Þak er timburþak klætt með járni. Undirneglingu vantar í þakskyggni.
Gluggar og hurð eru úr timbri. Timburverönd u.þ.b. 43.4 m²​ samkvæmt skráningu​​​​, umlykur húsið á alla vegu, heitur pottur er á verönd, skjólveggir eru við heitan pott.
Lóð er gróin að mestu leyti náttúrulegur lággróður, birki, móar og lyng, malarbílaplan er við húsið, pláss fyrir tvær bifreiðar. Rotþró er á lóð.
Lóðin er eignarlóð 4.074,0 m²  að stærð, í skipulögðu sumarbústaðalandi í Úlfsstaðaskógi. 

Samkvæmt greinargerð og skilmála, Úlfsstaðir Fljótsdalhéraði.
Stærð húsa skal vera á bilinu 25-90 brúttó m²​​​​​​. Þau skulu vera einnar hæðar með einföldu risi og byggð úr timbri. Skjólveggi skal nota sparlega, ekki er heimilt að byggja girðingar innan svæðis. Á lóðinni skulu vera bílastæði fyrir a.m.k. tvo bíla.  Ekki er heimilt að að flytja inn á svæðið fjölærar plöntur sem geta sáð sér út og raskað náttúrulegu gróðurfari þess. Hjólhýsi skúra og önnur slik mannvirki er ekki heimilt að hafa á svæðinu. 
Smellið hér fyrir Deiliskipulag Frístundabyggð í Landi Úlfsstaða
Smellið hér fyrir skráningu eignar í landeignaskrá land númer 199367.

Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 231-6132. Úlfsstaðaskógur 37, Múlaþing.

Stærð: Sumarbústaður 54.0 m². 
Brunabótamat: 36.850.000 kr.
Fasteignamat: 28.950.000 kr. Fyrirhugað fasteignamat 2026: 29.500.000 kr. 
Byggingarár: 2008.
Byggingarefni: Timbur.
Eignarhald:
01.0101 Íbúð 51.4 Brúttó m². 01.0102 Svefnloft 21.1 Brúttó m²​​​​​​. 01.0103 Verönd 43.4 Brúttó m²​​​​​​.
Landnúmer 199367. Sumarbústaðaland 4.074,0 m²


ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 471-2858 | byr@byrfasteignasala.is 
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is

Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.

Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.        
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi -  0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga  / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

www.byrfasteign.is | Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala

img
Elín Káradóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Byr fasteignasala
Miðvangur 2-4, Egilsstaðir
Byr fasteignasala

Byr fasteignasala

Miðvangur 2-4, Egilsstaðir
img

Elín Káradóttir

Miðvangur 2-4, Egilsstaðir
Byr fasteignasala

Byr fasteignasala

Miðvangur 2-4, Egilsstaðir

Elín Káradóttir

Miðvangur 2-4, Egilsstaðir