Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Aðalheiður Karlsdóttir
Vista
fjölbýlishús

SPÁNAREIGNIR - Playa Flamenca

953 Spánn - Costa Blanca

48.900.000 kr.

484.158 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2932603

Fasteignamat

0 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
101 m²
svg
3 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *NÝJAR EIGNIR Í GÖNGUFÆRI VIÐ STRÖND* *SUÐURSVALIR* *GEYMSLA OG STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU* *FRÁBÆR STAÐSETNING Í GÖNGUFÆRI VIÐ VERSLANIR, VEITINGASTAÐI OG LA ZENIA BOULEVARD*

Um er að ræða 3ja, 4ra og 5 herbergja íbúðir með 2 baðherbergjum sem snúa allar í suður. Staðsetningin gerist ekki betri, í göngufæri við strönd, verslanir, veitingastaði og La Zenia Boulevard. Eldhús er opið við stofu, og gengið er út á svalir bæði frá stofu og svefnherbergi. Þvottahús er innan íbúðar, en einnig fylgir sér geymsla og stæði í bílageymslu. Eignirnar eru til afhendingar í Júní 2026 og Júní 2027. Sameiginlegur sundlaugargarður og líkamsrækt.

Upplýsingar veita:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is, Sími 0034 615 112 869
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. Sími 00354 893 2495


Verð frá 338.000 evrum eða 48.900.000 ISK 

Ca. 50 mín akstur frá Alicante flugvelli. Ca. 10 mín göngufæri á Playa Flamenca ströndina, 10 mín. göngufæri í La Zenia Boulevard, flottu verslunarmiðstöðina og aðeins 5 mín. rölt á vinsæla laugardagsmarkaðinn í Playa Flamenca. Mercadona og úrval fleiri verslana og veitingastaða örstutt frá. Gróið og fallegt umhverfi. Einstakt tækifæri til að eignast nýja og flotta íbúð á fínu verði í frábæru umhverfi. Falleg hvít sandströnd sem liggur að Miðjarðarhafinu er í örstuttu göngufæri og hefur hún fengið BLUE FLAG viðurkenninguna. Þar eru fallegar gönguleiðir og skemmtilegt “promenaði” er meðfram ströndinni sem býður upp á skemmtilegar gönguferðir.
Miðborg Torrevieja er í ca. 15 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira. Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. Stutt er í dýragarðinn í Elche. Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast glænýja og vandaða íbúð á frábærum stað, stutt frá  öllu því sem gerir dvölina á Spáni  skemmtilega. 

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar http://www.spanareignir.is

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.

Kostnaður við kaupin: 10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: sundlaugargarður, suðursvalir, stæði í bílageymslu, air con, lyfta, garður, sundlaug
Svæði: Costa Blanca, Playa Flamenca,

 

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.