Opið hús: Reynimelur 44, 107 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 02 01. Eignin verður sýnd sunnudaginn 26. október 2025 milli kl. 13:30 og kl. 14:00.
Lýsing
Einstaklega björt og rúmgóð 3ja herbergja íbúð á 2. hæð með bílskúr í fallegu og mikið endurnýjuðu 7 íbúða fjölbýli við Reynimel í Vesturbæ Reykjavíkur. Húsið hefur fengið einstaklega gott viðhald síðustu ár. Eignin er ekki sýnd fyrir opið hús.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 120,5fm. og þar af er bílskúr 33,6fm. og geymsla 1,3fm.
Fasteignamat fyrir árið 2026 verður 88.400.000kr.
Nánar um eignina:
Anddyri með innbyggðum fataskáp og parket á gólfi.
Stofa er björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Rennihurð skilur að stofu og eldhús.
Eldhús með góðri innréttingu, innbyggðum skápum, uppþvottavél, helluborð, gufugleypir, fallegur horngluggi og parket á gólfi.
Hjónaherbergi mjög rúmgott með góðu skápaplássi og parketi á gólfi. Útgengt er út á svalir úr herberginu með tvöfaldri svalahurð.
Svefnherbergi rúmgott með parketi á gólfi.
Baðherbergi er með baðkari, opnanlegum glugga, góð innrétting, tengi fyrir þvottavél og þurrkara inn í innréttingu, flísar á hluti veggja og gólfi.
Geymsla íbúðar er í kjallara hússins með glugga.
Bílskúr með nýlegri bílskúrshurð, rafmagnsopnari, gluggum, heitt og kalt vatn. Bílaplan fyrir framan hús og bílskúr var hellulagt árið 2024.
Í sameign í kjallara eru sameiginlegt þvottahús þar sem hver íbúð er með sér tengi.
Snyrtileg sameign.
Garðurinn er í mjög góðri rækt og er aðkoma að húsinu glæsileg.
Endurbætur á húsinu síðustu árin:
2022
*Viðgerð á múr og steinsteypu
*Hús og bílskúr steinað
*Endurnýjun glugga og opnanlegra faga, ásamt gluggaviðgerðum - Gluggar íbúðar voru þegar endurnýjaðir nokkrum árum áður og metnir í góðu ástandi, því ekki þörf á frekari viðhaldi.
*Endurnýjun niðurfallsröra, brunna og skemmdra þakrenna
*Málun tréverks og þaks, ásamt sílanböðun viðgerða
2023
*Endurnýjun skólplagnar
*Drenað í kringum húsið
*Ný bílskúrshurð
2024
*Garður tekinn í gegn, nýtt gras og hellulögn
*Innkeyrsla hellulögð
2025
*Húsið endursteinað vegna galla í fyrri framkvæmd
að auki hefur rafmagnstafla verið endurnýjuð í húsinu og dyrasími.
Allar nánari upplýsingar veitir Kristján Baldursson hdl. og löggiltur fasteignasali í síma 8673040 eða á netfanginu kristjan@trausti.is eða Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.