Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Lilja Valþórsdóttir
Hákon Ólafur Hákonarson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2006
svg
229,7 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr

Lýsing

PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu fallegt einbýlishús ásamt bílskúr að Tjarnabakka 3 í Njarðvík.
Eignin er fallega innréttuð og vel skipulögð. Opið og bjart alrými, fjögur rúmgóð svefnherbergi, tvö baðherbergi og frábær útiaðstaða með heitum potti og gufubaði.

Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Eldhús með flísum á gólfi. Svart sprautuð innrétting með góðu skápa og vinnuplássi. Granít á borðum, tækjaskápur, span helluborð og háfur. Innbyggð uppþvottavél, gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp.
Stofa og borðstofa með flísum / parketi á gólfi. Arin sem er opin á tvo vegu. Útgengt á verönd.
Sjónvarpshol með parketi á gólfi. 
Herbergin fjögur eru með parketi á gólfum.
Baðherbergi 1: með flísum á gólfi og veggjum. Svart sprautuð innrétting með granít borðplötu. Upphengt salerni, handklæðaofn, sturta og baðkar.
Baðherbergi 2: með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Lítil innrétting, upphengt salerni og sturta. Þetta rými er inn af bílskúrnum.
Þvottahús með flísum á gólfi. Svart sprautuð innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Frábær vinnuaðstaða. Góðir skápar sem hugsaðir eru fyrir alla fjölskyldumeðlimi.
Bílsklúr með parketi á gólfi að hluta til. Góð innrétting innst í skúrnum sem nýtt er sem skrifstofuaðstaða. Gott geymsluloft. Innangengt er í bílskúrinn frá forstofu.
Lóð er frágengin á snyrtilegan hátt. Innkeyrsla er hellulögð og snjóbræðsla er í henni að stórum hluta. Góð verönd með skjólveggjum, heitum potti og gufubaði. Einnig er stór geymsluskúr á lóðinni og gróðurhús.

Góð staðsetning þar sem stutt er í skóla og leikskóla.

Allar nánari upplýsingar veita Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða lilja@prodomo.is og Hákon Ó. Hákonarson Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 899-1298 eða hakon@prodomo.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

img
Lilja Valþórsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
PRODOMO fasteignasala
Hafnargötu 15, 230 Keflavík
PRODOMO fasteignasala

PRODOMO fasteignasala

Hafnargötu 15, 230 Keflavík
phone
img

Lilja Valþórsdóttir

Hafnargötu 15, 230 Keflavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
9. maí. 2018
50.100.000 kr.
56.000.000 kr.
229.7 m²
243.796 kr.
9. jan. 2008
32.620.000 kr.
25.500.000 kr.
229.7 m²
111.014 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
PRODOMO fasteignasala

PRODOMO fasteignasala

Hafnargötu 15, 230 Keflavík
phone

Lilja Valþórsdóttir

Hafnargötu 15, 230 Keflavík