Opið hús: Reyrengi 1, 112 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 03 01. Eignin verður sýnd sunnudaginn 26. október 2025 milli kl. 13:30 og kl. 14:00.
Lýsing
Virkilega fallega og vel skipulagða 4ra herbergja 95,3 fm. endaíbúð á 3. hæð ( efstuhæð ). Nýlega búið að endurnýja eldhús innréttingu og tæki. 3 svefnherbergi og rúmgóð stofa. Frábær staðsetning, afar stutt í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu. Stæði í opnu bílskýli fylgir íbúð.
Nánari upplýsingar veitir:
Þórarinn Thorarensen sölustjóri s. 770-0309 eða th@landmark.is
Sveinn Eyland lögg. fast.
Nánari lýsing:
Forstofa: Harðparket á gólfi, fataskápur
Miðrými: Harðparket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Rúmgóð og björt með harðparket á gólfi. Útgengt á suðvestursvalir með ágætu útsýni.
Eldhús: Nýleg og vrikilega falleg innrétting og tæki frá Ikea, harðparket á gólfi, rúmgóður borðkrókur við glugga.
Herbergi: 3 rúmgóð svefnherbergi, nýlega búið að endurnýja fataskápa í tveimur herbergjum. Harðparket á gólfum.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtuaðstöðu. Falleg innrétting í kringum handlaug með speglaskáp yfir. Góð aðstaða þar inni fyrir þvottavél og þurrkara. Opnalegur gluggi og handklæðaofn.
Geymsla: Innaf eldhúsi. Harðparket á gólfi, opnanlegur gluggi.
Sameiginleg hjólageymsla á jarðhæð.
Ástandsskýrsla liggur fyrir frá Verksýn, ekki hefur verið tekin ákvöðrun um framkvæmdir af húsfélagi.
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat