Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2021
140,5 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Bílskúr
Sérinngangur
Lýsing
Valfell fasteignamiðlun og ráðgjöf sími 570-4824.
Krossvellir 2 í Hvalfjarðarsveit (301)Björt og rúmgóð 3ja herbergja 106,6 fm endaíbúð á 2 hæð með sérinngangi og 33,9 fm bílskúr alls 140,5 fm .
Falleg, björt og rúmgóð 3ja herbergja 106,6 fm endaíbúð á 2. hæð með sérinngangi og fallegu útsýni út á Faxaflóa. Íbúðinni fylgir 33,9 fm bílskúr á 1. hæð hússins, skolvaskur í bílskúr og gluggar á gafli, innangengt úr bílskúr í sameign þar sem er sameiginleg hjóla og vagnageymsla. Hiti í tröppum. Stórar og rúmgóðar svalir með felligleri og glæsilegu útsýni.
Innan íbúðar eru tvö svefnherbergi, fataskápur í hjónaherbergi. Forstofa með fataskáp. Stórt og rúmgott hol sem nýtist sem sjónvarpshol. Eldhús með fallegri hvítri innréttingu, innbyggð uppþvottavél fylgir með.
Rúmgóð stofa og úr stofu er gengið út á suðvestursvalir. Baðherbergið er stórt og rúmgott, baðkar, sturta og tengi fyrir þvottavél og þurrkara, einnig er tengi fyrir þvottavél og þurrkara í bílskúr. Húsið er staðsteypt, einangrað að utan og klætt.
Allar nánari uppl. veitir Hákon á hakon@valfell.is
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
22. sep. 2022
27.950.000 kr.
50.000.000 kr.
140.5 m²
355.872 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026