Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Snorri Sigurðsson
Vista
svg

509

svg

416  Skoðendur

svg

Skráð  27. okt. 2025

einbýlishús

Grashagi 4

800 Selfoss

89.900.000 kr.

524.198 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2186161

Fasteignamat

76.450.000 kr.

Brunabótamat

84.600.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1974
svg
171,5 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fasteignasalan Heimaland kynnir í einkasölu, Grashagi 4 á Selfossi. 
Um er að ræða steypt einbýlishús í grónu hverfi miðsvæðis á Selfossi. Húsið er byggt árið 1974 og bílskúrinn 1977.
Skráð stærð eignarinnar er 171,5fm og skiptist í 127,2fm íbúð og 44,3fm bílskúr. 
Stór bakgarður sem snýr í suðvestur var nýlega tekinn í gegn og þökulagður ásamt því að byggður var stór sólpallur með heitum potti. Einnig var húsið málað að utan síðastliðið sumar. 

Að innan skiptist húsið í forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Ásamt tvöföldum bílskúr. 

Gengið er inn í flísalagða forstofu. Þaðan er gengið inn í bjarta og rúmgóða stofu/borðstofu með parketi á gólfum. 
Eldhúsið er flísalagt, innrétting er með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. 
Svefnherbergin eru þrjú, tvö rúmgóð og það þriðja minna. Fataskápur er í einu þeirra. Parket á gólfum. 
Baðherbergið er flísalagt með sturtu, upphengdu salerni og innréttingu. 
Þvottahús er rúmgott inn af eldhúsi. 
Bakgarðurinn er stór og snýr í suð/vestur, stór sólpallur með heitum potti er í garðinum. 

Hér er um að ræða vel skipulagða og snyrtilega eign, miðsvæðis á Selfossi sem vert er að skoða nánar.
Stutt er í alla helstu þjónustu.
Leikskóli, grunnskóli, framhaldsskóli, sundlaug og íþróttamannvirki í næsta nágrenni ásamt því að vera í göngufæri frá nýjum Miðbæ Selfoss. 

Nánari upplýsingar veitir:
Snorri Sigurðarson, löggiltur fasteigna og skipasali, sími 897-7027, snorri@heimaland.is
Elísa Dagmar Björgvinsdóttir, aðstoðarmaður fasteignasala í löggildingarnámi, sími 868-7938, elisa@heimaland.is


Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald kaupanda er skv. verðskrá. 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskildu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Heimaland hvetur því viðskiptavini sína og væntanlega kaupendur af fasteignum að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir tilboðsgerð eða eftir atvikum fyrir kaupsamningsgerð. Ef þurfa þykir ættu væntanlegir kaupendur að leita til þar til bærra sérfræðinga um aðstoð við slíka skoðun. 

www.heimaland.is,  Austurvegur 6, 800 Selfoss, Fasteignasalan Heimaland ehf.

Fasteignasalan Heimaland ehf.

Fasteignasalan Heimaland ehf.

Brúarstræti 2, 2.hæð - 800 Selfoss
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
12. ágú. 2021
44.700.000 kr.
56.000.000 kr.
171.5 m²
326.531 kr.
2. ágú. 2018
33.100.000 kr.
38.000.000 kr.
171.5 m²
221.574 kr.
31. júl. 2013
24.150.000 kr.
24.053.000 kr.
171.5 m²
140.251 kr.
9. ágú. 2011
22.150.000 kr.
23.452.000 kr.
171.5 m²
136.746 kr.
22. júl. 2010
25.200.000 kr.
25.000.000 kr.
171.5 m²
145.773 kr.
12. mar. 2010
25.200.000 kr.
25.000.000 kr.
171.5 m²
145.773 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignasalan Heimaland ehf.

Fasteignasalan Heimaland ehf.

Brúarstræti 2, 2.hæð - 800 Selfoss