Lýsing
Bókið skoðun ! Sýni samdægurs - Miklaborg kynnir: Fallega og bjarta 3ja herbergja íbúð á 2. hæð við Laugaveg 147A. Eignin er skráð 62,5 fm skv. fasteignaskrá. Íbúðin er 50,2 fm og geymsla í kjallara 12,3 fm. Eignin skiptist í tvær stofur, eldhús, baðherbergi, svefnherbergi og sérgeymslu í kjallara. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara inná baðherbergi. Einnig er sameiginlegt þvottahús í kjallara.
Nánari upplýsingar veitir Friðjón Örn Magnússon löggiltur fasteignasali í síma 692 2704 eða fridjon@miklaborg.is
Laugavegur 147A er íbúðarhúsnæði byggt árið 1926. Húsið er kjallari, tvær hæðir og ris. Útveggir og gaflar eru úr steinsteypu og þakið er tvíhalla timburþak með mæni samsíða Mjölnisholti. Í húsinu eru þrjár íbúðir. Aðalinngangur í stigahús er frá undirgöngum við suðurgafl. Íbúð 201 er á 2. hæð, birt stærð er 50,2 m2. Eigninni tilheyrir 12,3 m2 geymsla í kjallara.
Nánari lýsing
Gengið er inn í eignina frá undirgöngum við suðurgafl.
Eldhús með hvítri innréttingu. Opnir efri skápar. Dúkur á gólfi.
Svefnherbergi er staðsett við hlið eldhúss. Parket á gólfi.
Stofur eru samliggjandi með glerhurð á milli rýma. Parket á gólfi.
Baðherbergi er með sturtuaðstöðu, einfaldri hvítri innréttingu með skolvask og WC. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara inná baðherbergi.
Sameign í kjallara þar sem er sérgeymsla og sameiginlegt þvottahús.
Nánari upplýsingar veitir Friðjón Örn Magnússon löggiltur fasteignasali í síma 692 2704 eða fridjon@miklaborg.is