Lýsing
Miklaborg kynnir: Vel skipulagðar og vistvænar 40-155 fm íbúðir í Hamranes hverfinu í Hafnarfirði. Flestar íbúðir falla undir Hlutdeildarlán hjá HMS.
-Burðarvirki hússins er CLT burðarkerfi frá Element, sem er krosslímt gegnheilt timbur og er sagður heilsueflandi og umhverfisbætandi byggingarmáti.
- Íbúðirnar munu vera BREEAM vottaðar og stefnt að “Excellent” einkunn. Væri það í fyrsta sinn á Íslandi sem íbúðarbygging næði þeirri einkunn
- Sérstæð loftræsting frá Swegon fyrir hverja íbúð, sem tryggir loftgæði og innivist. Gólfkerfi frá Granab í Svíþjóð sem tryggir góða hljóðvist.
- Innréttingar frá VOKE3 og tæki frá Electrolux. Hágæða baðherbergi eru forframleidd og koma frá Green Box í Danmörku.
- Lagnaleiðir lagðar að bílastæðum fyrir rafhleðslu, gert ráð fyrir að hægt sé að leggja að stæðum.
Verð frá: 45 milljónum.
Nánari upplýsingar veitir Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is
Nánari upplýsingar er að finna hér á heimasíðu verkefnisins
NÁNARI LÝSING: Björt og vel skipulögð 54,7 fm 2ja herbergja íbúð á 3.hæð ásamt geymslu í kjallara. Komið inn í anddyri með skápum og þaðan gengið inn í alrými. Eldhús er með fallegri innréttingu frá Voke3, sem skilast með innbyggðum ísskáp, uppþvottavél og örbylgjuofn. Eldhús er opið inní bjarta stofu með gluggum. Útgengt er út á suður svalir úr stofu. Baðherbergi er með góðri innréttingu, upphengdu salerni og þröskuldslaus sturtuklefi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi. Gott svefnherbergi með skápum.
Íbúðin afhendist fullbúin en án gólfefna.
Nánari upplýsingar veitir Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is