Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæja kynnir: Glæsilegt og vel skipulagt parhús á tveimur hæðum með stóru bílastæði og innbyggðum bílskúr við Uglugötu 9A í Mosfellsbæ. Svalir og bakgarður í suðvesturátt. Eignin er skráð 216,7 m2, þar af raðhús 189,6 m2 og bílskúr 27,1 m2. Eignin skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, hjónaherbergi með fataherbergi, 3 barnaherbergi, 2 baðherbergi, geymslu og bílskúr. Stórar svalir með fallegu útsýni og svalalokun. Í bakgarði er timburverönd. Við hlið húsins er steypt verönd/bílastæði. Bílaplan er steypt og með snjóbræðslu. Stutt er í alla helstu þjónustu svo sem nýjan leiksskóla skóla, ósnortna náttúru og göngu- og hjólastíga.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax
Nánari lýsing
Neðri hæð:
Forstofa er með flísum á gólfi. Úr forstofu er innangengt í bílskúr.
Gangur er með flísum á gólfi. Af gangi er gengið út á lóð til vesturs.
Svefnherbergi nr. 1 er með parketi á gólfi og fataskáp
Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi og fataskáp
Baðherbergi/Þvottahús er flísalagt í hólf og gólf. Á baði er innrétting með tveimur skolvöskum, vegghengt salerni og 'walk in' sturta. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu.
Geymsla er með flísum á gólfi og hillum
Bílskúr er með epoxý á gólfi. Er skráður 27,1 m2.
Stigi með teppi er upp á efri hæðina.
Efri hæð:
Stofa og borðstofa er í opnu rými með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á svalir með fallegu útsýni í suðurátt. Búið er að setja upp svalalokun.
Eldhús er með fallegri innréttingu og eyju. Í innréttingu er innbyggð uppþvottavél, tveir innbyggðir kæli og frystiskápar, niðurfelldur vaskur, tveir ofnar og helluborð.
Svefnherbergi nr. 3 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi nr. 4 (Hjónaherbergi) er með parketi á gólfi. Inn af herbergi er fataherbergi með opnum fataskápum.
Baðherbergi er með flísalagt í hólf og gólf. Á baði er innrétting með skolvask, 'walk in' sturtu, handklæðaofn og vegghengt salerni.
Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2026 er kr. 142.550.000.-
Verð kr. 149.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.