Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Bjarklind Þór Olsen
Vista
svg

61

svg

60  Skoðendur

svg

Skráð  6. nóv. 2025

fjölbýlishús

Bríetartún 16

105 Reykjavík

80.900.000 kr.

893.923 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2009648

Fasteignamat

69.400.000 kr.

Brunabótamat

42.950.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1945
svg
90,5 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 15. nóvember 2025 kl. 14:00 til 14:30

Opið hús: Bríetartún 16, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 04 01. Eignin verður sýnd laugardaginn 15. nóvember 2025 milli kl. 14:00 og kl. 14:30.

Lýsing

Borgir  fasteignasala kynnir eignina Bríetartún 16, 105 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 04-01, fastanúmer 200-9648 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Samkvæmt FMR er birt stærð 90.5 fm en gólfflötur er stærri vegna þess að hluti íbúðarinnar er undir súð. Geymslan er 6.3. 

Eignin Bríetartún 16 er á 4.hæð (rishæð) í hjarta Reykjavíkur í göngufæri við kaffihús, verslanir, veitingastaði, sundlaugar, skóla, leiktæki og mjög stutt að ganga í miðbæinn. Eignin er á efstu hæð með svalir til suðurs og góðu útsýni. Fyrir aftan húsið er sólríkur garður sem snýr til suðurs og er sameigninlegur öllum 8 íbúðum hússins. Garðurinn liggur að grónum og skjólsælum bakgarði þar sem er körfuboltavöllur, leikvöllur og líkamsræktartæki. Ungbarnaleikskóli er í götunni og einnig eru leikskólar í göngufæri, sturr er í allar almenningssamgöngur í allar áttir. Eignin sjálf skiptist í forstofu, eldhús, stofu, borðstofu/herbergi, hjónaherbergi, barnaherbergi og baðherbergi. Geymslan og sameiginlegt þvottahús er í kjallara bæði með glugga. Eignin getur verið laus fljótlega. 

Nánari upplýsingar veita:
Jóhanna Margrét Jóhannsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8200788, tölvupóstur johanna@borgir.is.
Bjarklind Þór Löggiltur fasteignasali, í síma 6905123, tölvupóstur bjarklind@borgir.is. 


Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Komið inn í forstofu og gengið upp tröppur inní íbúðina. 
Gangur/Hol: Gangurinn er rúmgóður með fatahengi.
Hjónaherbergi: Er rúmgott með góðum glugga sem snýr til suðurs. Mjög góður fataskápur. 
Barnaherbergi: Með kvistglugga.
Eldhús: Hvít og góð innrétting með háf fyrir ofan keramikhelluborð. Bakarofn í vinnuhæð og innfeldur ísskápur og uppþvottavél. Góður borðkrókur með kvistglugga. 
Borðstofa/herbergi: Er í dag notað sem svefniherbergi, auðveldlega hægt að opna aftur inní stofuna og nýta sem borðstofu. Góðir fataskápar. 
Stofa: Rúmgóð stofa með útgengi út á góðar suður svalir. 
Baðherbergið: Er með baðkari, vaskaskáp og kvistglugga. Flísar á gólfi. 

Um er að ræða mjög skemmtilega 2-3 svefniherbergja íbúð á góðum stað í miðbænum með notalegt útsýni yfir bakgarðinn. Nýlegt vínilparket er á öllum gólfum nema eldhúsi og baðherbergi þar eru flísar.
Á síðustu fjórum árum hafa gluggar verið endurnýjaðir, heita-og kaldavatnslagnir að hluta og verið var að klára múrviðgerðir og steiningu á húsinu. Eitt íbúa kort fylgir eigninni. 
Áætlað fasteignamat fyrir árið 2026 er 77.200.000.- 
Samkvæmt deiliskipulagi má byggja kvisti á húseignina og stækka þannig íbúðina umtalsvert og hafa þegar verið gerðar teikningar. Gluggar í norður myndu þá hafa útsýni í norður og vestur. 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Vill Borgir því skora væntanlega kaupendur á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 70.000 mvsk.

Borgir fasteignasala

Borgir fasteignasala

Suðurlandsbraut 18 3.hæð, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
25. jún. 2019
41.550.000 kr.
43.400.000 kr.
90.5 m²
479.558 kr.
19. feb. 2018
38.300.000 kr.
42.000.000 kr.
90.5 m²
464.088 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Borgir fasteignasala

Borgir fasteignasala

Suðurlandsbraut 18 3.hæð, 108 Reykjavík
phone