Lýsing
OPIÐ HÚS VERÐUR Í HESTAVAÐ 7, ÍBÚÐ 206, ÞRIÐJUDAGINN 11. NÓVEMBER KL. 18:00-18:30.
Upplýsingar veitir: Pétur Ísfeld Jónsson, löggiltur fasteignasali í síma 862-5270 eða petur@husaskjol.is
SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SÖLUSÝNINGU OG SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR HESTAVAÐ 7, ÍBÚÐ 206.
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka frítt verðmat á þinni eign.
Húsaskjól og Pétur Ísfeld, löggiltur fasteignasali, kynna til sölu: Opin, björt og vel skipulögð þriggja herbergja íbúð á jarðhæð með sér inngangi, stóru björtu alrými og stórri verönd sem snýr í suður í Hestavaði 7, Norðlingaholti, með fasteignanúmer 2281637. Birt stærð eignar er skráð 110,8 fm, þar af íbúðarrými 99,3 fm, geymsla 11,5 fm. Íbúðin skiptist í anddyri, tvö svefnherbergi, rúmgott baðherbergi, þvottahús í íbúð, stofa og eldhús í opnu sameiginlegu rými þaðan sem útgengt er á stóra timburverönd sem vísar í suður. Gott skipulag er á eigninni, vandaðar innréttingar og gólfefni. Einnig er eldhús og tæki nýleg.
Hér er hægt að skoða stutt yfirlitsmyndband af Hestavað 7
Nánari lýsing
Forstofa: Gengið inn í forstofu í gegnum sérinngang á jarðhæð, vandaður tvöfaldur fataskápur er á hægri hönd og góð yfirsýn er yfir íbúðina. Á gólfi er steingráar flísar.
Alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu: er með ljósu parketi á gólfi og stórum gluggum fyrir enda sem vísa út á pall og í suður sem gera rýmið bjart og notalegt. Búið er að klæða einn vegg með hljóðdempandi viðar plötu með dökkum við. Þetta er rými sem býður upp á mikla möguleika.
Eldhús: er vel skipulagt og stílhreint með gott skipulag og miklu skápa og vinnuplássi. Borðplatan og flísar á milli efri og neðri skápa eru hvít og skápa hurðar eru dökk brúnar. Í eldhúsi er helluborði með viftu yfir, ofn í góðri vinnuhæð, vaskur og pláss fyrir tvöfaldann háan ísskáp, örbylgju og uppþvottavél.
Hjónaherbergi: er bjart og rúmgott með með pláss fyrir hjónarúm, náttborð beggja vegna og fjórfaldur fataskápur á vegg fyrir aftan hurðina. Í herberginu er góður gluggi með opnanlegu fagi og á gólfi er ljóst parket.
Barnaherbergi: er er mjög rúmgott með pláss fyrir hjónarúm og skrifborð. Rýmið bjart með tvöföldum skáp, góðum glugga með opnanlegu fagi. Á gólfi er ljóst parket.
Baðherbergi: er með steingráar flísar á gólfi og í kringum bað. Góð hvít innrétting, með þreföldum skáp undir vaski. Stór vel lýstur spegill er yfir allri innréttingunni og gott frálegs pláss við hliðina á vaskinum. Einnig er upphengt klósett og sturta í baði.
Þvottahús: er með steingráar flísar gólfi og opinn skápur er undir plássi fyrir þvottavél og þurrkara.
Pallur: er í suður út frá stofu og eldhúsi.
Geymsla: er staðsett á jarðhæð.
Sameign: er með sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Lóð: er snyrtileg og á henni er sameiginlegur leikvöllur með leiktækjum.
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla á jarðhæð. Eignin hefur sérinngang og er því leyfilegt að hafa hundahald. Þá býður eignin upp á gott aðgengi fyrir hjólastóla.
Hér er um að ræða glæsilega eign sem vert er að skoða, sjón er sögu ríkari.
Frábær staðsetning í rólegu og fjölskylduvænu hverfi, í næsta nágrenni við leik- og grunnskóla, sundlaug og fjölbreytt íþróttastarf. Örstutt í fallegar göngu- og hjólaleiðir og má þar helst nefna, Heiðmörkina, Elliðaárdalinn og fallegu náttúruna við Rauðavatn.
Hér er hægt að nálgast teikningar af eign
Upplýsingar veitir: Pétur Ísfeld Jónsson, löggiltur fasteignasali í síma 862-5270 eða petur@husaskjol.is
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði