Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg 4ra herbergja mikið endurnýjuð íbúð á fjórðu og efstu hæð við Álfheima 38, rétt við Laugardalinn. Eignin er skráð 92,5 m2, þar af íbúð 89 m2 og geymsla 3,5 m2. Íbúðin skiptist í forstofu/hol, stofu, eldhús, 3 svefnherbergi, og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Geymsla er í sameign í kjallara. Eignin hefur fengið gott viðhald undanfarin ár. Skipt hefur verið um gólfefni, ný eldhúsinnrétting, baðherbergi verið tekið í gegn og nýjar innihurðir. Fallegt útsýni og frábær staðsetning þar sem stutt er í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu í Glæsibæ og Skeifunni. Vinsæl útivistarsvæði og afþreying í Laugardalnum aðeins steinsnar frá.
Samkvæmt upplýsingum frá húsfálagi þá hefur húsið fengið gott viðhald á undanförnum árum. Meðal annars var húsið múrviðgert og málað árið 2023 og komið fyrir hitavír í þakrennum sama ár. Árið 2024 var skipt um allar lofttúður á þaki. Skipt var um járn á þaki árið 2017. Skólplagnir voru endurnýjaðar árið 2015 og drenlagnir í kringum alla blokkina árið 2008.
Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
Lýsing eignar:
Forstofa/hol er með parketi á gólfi og fataskáp.
Eldhús er með fallegri hvítri innréttingu, uppþvottavél, bakaraofni, helluborði og viftu.
Stofa er rúmgóð og björt með parketi á gólfi.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er með parketi á gólfi og góðum fataskápum. Útgengt er á svalir til suðurs.
Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 3 er lítið með parketi á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, upphengdu salerni, baðkari með sturtuaðstöðu, góðri innréttingu með handlaug, handklæðaofni. Aðstaða fyrir fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla 3,5 m2 er í sameign í kjallara.
Sameiginleg hjólageymsla er í sameign í kjallara ásamt sameiginlegu þvottahúsi.
Fyrirhugað fasteignamat 2026 er kr. 69.600.000
Verð kr. 72.500.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.