Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 104,0 m2, 3ja herbergja íbúð á jarðhæð í nýlegu lyftuhúsi við Bjarkarholt 27 í miðbæ Mosfellsbæjar. Eignin er skráð 104,0 m2, þar af íbúð 96,8 m2 og geymsla 7,2 m2. Íbúðin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu og borðstofu. Stór afgirtur sérafnotareitur í suðurátt. Sérgeymsla í kjallara. Frábær staðsetning í miðbæ Mosfellsbæjar þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
Nánari lýsing:
Forstofa er rúmgóð með fataskáp og parketi á gólfi. Búið er að fjarlægja hurð milli forstofu og alrýmis og stækka hurðaropið.
Svefnherbergi nr. 1 (hjónaherbergi) er rúmgott með parketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt með vegghengdu salerni, sturtu, handklæðaofni og góðri innréttingu. Gólfhiti er á bað. Innaf baðherbergi er þvottarými með innréttingu.
Eldhús er með parketi á gólfi og fallegri eldhúsinnréttingu með innbyggðri uppþvottavél, blástursofni og helluborði. Gert er ráð ísskáp í innréttingu
Stofa og borðstofa eru í björtu opnu rými með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á stóran afgirtan sérafnotareit í suðurátt.
Sérgeymsla 7,2 m2 er í sameign í kjallara.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign á jarðhæð.
Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2026 er kr. 75.450.000,-
Verð 79.900.000 kr.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.