Lýsing
Miklaborg kynnir: Falleg útsýnisíbuð á 3.hæð í Hraunbæ 103 fyrir 60 ára og eldri. Húsið er lyftuhús og er innangengt í þjónustumiðstöð þar sem boðið er upp á ýmis félagsstörf og þjónustu og möguleiki á að kaupa þar tilbúinn mat. Stutt að sækja verslanir og þjónustu ma. apótek, heilsugæslu og matvöruverslanir. Sundlaug og fallegar gönguleiðir í Elliðaárdalnum í grend við þessa góðu staðsetningu. Tvær lyftur í húsinu og auðvelt hjólastóla aðgengi.
Bókið skoðun hjá Jóni Rafni fasteignasala með því að senda póst á jon@miklaborg.is. S: 695-5520
Um er að ræða endaíbúð með góðum gluggum. Glæsilegt útsýni og hægt að hafa borðstofu við útsýnisglugga. Eignin er snyrtileg og auðveld í umgengi.
Nánari lýsing eignar:
Anddyri: Sjónvarpshol með litlum glugga í holi inn af anddyri.
Eldhús: Innrétting er hvít og beyki, nýr bakaraofn. Eldhús er hálf opið við stofu.
Stofa/borðstofa: Viðarparket á gólfi og útgengt á yfirbyggðar svalir sem snúa í vestur. Gluggar í tvo vegu.
Svefnherbergi: Fataskápar er góðir og viðarparket á gólfi. Innangengt er á baðherbergi.
Aukaherbergi: Með skáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Nýlega endurnýjað þ.e. innréttingar, gólfdúkur og armar við salerni. Aðstaða fyrir þvottavél
og þurrkara. Hægt er að ganga inn á bað bæði frá holi og frá hjónaherbergi.
Búr/geymsla: Dúkur á gólfi, er staðsett til móts við eldhús.
Einnig fylgir svokallað geymsluhólf í sameign.
Gott útsýni, vestur svalir með svalalokun.
Samkvæmt fasteignamati er stærð eignar 87,5 m2
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Jón Rafn fasteignasali, jon@miklaborg.is, S: 695-5520