Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Aðalheiður Karlsdóttir
Vista
fjölbýlishús

SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf

953 Spánn - Costa Blanca

67.400.000 kr.

566.387 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F1051503

Fasteignamat

0 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
119 m²
svg
3 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*NÝTT Í SÖLU*-*FLOTT ÍBÚÐ Á MÓTI SUÐRI Á FRÁBÆRUM STAÐ*

Glæsileg og vel hönnuð ný íbúð á Las Colinas golfsvæðinu. Íbúðin er á jarðhæð með góðu útisvæði til suðurs.  Sér sundlaugargarður með góðri sameiginlegri aðstöðu, sér stæði í bílakjallara og geymsla. 
Rúmgóðar íbúð,  tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi, góð stofa, opið eldhús með vandaðri innréttingu. 
Las Colinas hefur verið valið besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu. Um 1 klst. akstur suður af Alicante.

Lengi hefur verið beðið eftir íbúðum á þessum stað. Þessi var seld, en kom til baka þar sem fjármögnun náðist ekki.
Allar upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 00354 893 2495. adalheidur@spanareignir.is, 
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is. GSM 0034 615 112 869,

Lýsing:

Þessi frábæra íbúð er á einum vinsælasta staðnum á Las Colinas. Tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi, rúmgóð stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými. Góð verönd á móti suðri. 

Fallegur sameiginlegur sundlaugargarður.  Einstakt gróið umhverfi, með Las Colinas golfvöllinn rétt við þröskuldinn. Skemmtilegar göngu- og skokkleiðir og ca. 10 mín akstur á Campoamor ströndina.

Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum.  Á svæðinu er glæsileg þjónustumiðstöð með líkasmsræktaraðstöðu, fleiri veitingastöðum og ýmissi þjónustu. Algjör lúxus fyrir vandláta. 

Loftkæling/hitun fylgir.
Auk þess rafmagnstæki í eldhúsi ásamt þvottavél.
Góður kaupauki fylgir með, hafið samband og kynnið ykkur málið.

Margir frábærir golfvellir eru í næsta nágrenni auk Las Colinas golvallarins, t.d.  La Finca, Las Ramblas, Campoamor, Villamartin.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Campoamor og ca. 10 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Hér er um að ræða flotta eign á góðum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf og eiga góðar stundir með fjölskyldu
og vinum.

Verð miðað við gengi 1 Evra=145ISK.

Íbúð með 2 svefnh. + 2 baðh. 
Verð frá 465.000 Evrum (ISK 67.400.000) + kostn. við kaupin
Íbúð 74 fm
verönd 45 fm
Samtals 119 sérafnotafm.
Auk þess sér bílastæði í bílakjallara ásamt sér geymslu.

Einnig eru á sama stað í boði Íbúðir með 3 svefn. + 2 baðh.
Verð frá 625.000 evrur (ISK 90.600.000ISK) + kostn. við kaupin.

Hægt er að fá íbúðirnar afhentar fullbúnar húsgögnum gegn aukagjaldi.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: útsýni, air con, golf, sameiginlegur sundlaugargarður, ný eign,
Svæði: Costa Blanca, Las Colinas,

img
Aðalheiður Karlsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Spánareignir
Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.
img

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.