Lýsing
*OPIÐ HÚS ÞANN 30.NÓV KL 15:30-16:00*
Móeiður Svala lögg. fasteignasali og Miklaborg kynna: Frábæra einingu sem er skráð vörugeymsla en hefur verið útbúin sem íbúðarhúsnæði eða sérbýli við Skólavörðustíg, 101 Reykjavík. Birt stærð er 26,8 fm. raunstærð er meiri. Eignarlóð samkvæmt þinglýstri yfirlýsingu frá maí 1993.
Hentar vel fyrir einstakling eða par sem vill njóta miðborgarlífsins — eða sem frábær fjárfestingarkostur til útleigu.
Allar nánari upplýsingar veitir Móeiður Svala lögg. fasteignasali í síma 899-8278 eða moa@miklaborg.is
Vel skipulögð og björt íbúð með fallegu eldhúsi og stofu með mikilli lofthæð. Svefnloft með góðri aðstöðu og baðherbergi með þvottaaðstöðu og sturtu.
Komið er inn á pall og þaðan í forstofu sem hægt er að einangra. Úr forstofu er gengið inn í bjart og opið aðalrými með eldhúsaðstöðu og stofu í sameiginlegu rými. Eldhúsið er með snyrtilegum innréttingum og glerskápum. Frá aðalrými liggja tröppur upp á svefnloft með góðri svefnaðstöðu. Gengið er niður í baðherbergi með þvottaaðstöðu, salerni, handlaug, speglaskáp með lýsingu, sturtu og handklæðaofni. Fyrir framan inngang er um 20 fm sólpallur sem nýtist vel yfir sumartímann.
Hér er um að ræða gott tækfæri til útleigu eða fyrir einstakling eða par sem elskar miðborgina og mannlífið.
Allar nánari upplýsingar veitir Móeiður Svala lögg. fasteignasali í síma 899-8278 eða moa@miklaborg.is