Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Björn Guðmundsson
Berglind Jónasardóttir
Greta Huld Mellado
Vista
svg

182

svg

162  Skoðendur

svg

Skráð  17. nóv. 2025

fjölbýlishús

Austurbrú 14 - 405

600 Akureyri

107.000.000 kr.

1.113.424 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2531372

Fasteignamat

47.550.000 kr.

Brunabótamat

7.820.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2024
svg
96,1 m²
svg
2 herb.
svg
1 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955

Einstakar útsýnisíbúðir í hjarta Akureyrar. Staðsetningin býður íbúum við Austurbrú uppá einstök gæði. Íbúðirnar eru í nálægð við Pollinn, miðbæinn og stóran hluta menningarstarfsemi Akureyrar.


Fyrir ítarlegar upplýsingar, m.a. skilalýsingu smellið hér

***Bókaðu einkaskoðun í síma 464 9955 eða á byggd@byggd.is***

Íbúð 405 -- Laus til afhendingar --

Mjög rúmgóð tveggja herbergja útsýnisíbúð með aukinni lofthæð og tvennar svalir í nýbyggingu ásamt stæði í lokaðri bílageymslu við Austurbrú 14.
Íbúðin er samtals 96,1 fm., þar af er sér geymsla í sameign 8,2 fm..


Íbúðin:
Komið er inn í anddyri við alrými og eru skápar á gangi fyrir útiföt.
Stofa og alrými er afar bjart með parket á gólfi og aukinni lofthæð. Tvennar svalir eru aðgengilegar úr alrými, bæði til austurs með útsýni yfir Pollinn og svalir til suðurs. Stofan er að hluta til undir súð með fallegum þakglugga sem hleypir inn birtu. 
Opið eldhús með frábæru útsýni til austurs yfir Pollinn. Eldhúseyja með kvarts stein og span helluborði.  Skúffur og skápar í eldhúsinu eru allar með ljúflokum. Eldhúsinnrétting með kvarts stein, bakaraofn í vinnuhæð og innfelldan vaskur.  Allar skúffur og skápar með ljúflokum. Innbyggð uppþvottavél og ísskápur fylgir og þá er innfelld lýsing frá Lumex í lofti yfir eldhúsi. 
Þvottahús er við hlið eldhúss og þar er lítil innrétting með stæði fyrir þvottavél.
Baðherbergi er glæsilegt með flísum, innréttingu í kringum vask, sturtu með glerskilrúmi og upphengdu salerni.
Svefnherbergi er svo með parket á gólfi og fataskápum.  
Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir íbúðinni.


Sameign er með glæsilegra móti.
Komið er inn í rúmgott anddyri.  Stórar ljósakrónur og lýsing frá Lumex gefa fallega birtu.
Hljóðplötur í lofti, þannig að hlóðvist verður með besta móti.
Flísar á gólfi frá kjallara og upp á pall fyrstu hæðar.  Frá fyrstu hæð eru stigagangarnir teppalagðir.
Innangengt úr hverjum stigagangi niður í lokaða bílageymslu.

Við Austurbrún 10-14 verða 35 íbúðir og eru þær allar með verönd eða svalir. Gluggarnir nema við gólf fyrir óhefta dagsbirtu og útsýni. Flestum íbúðunum fylgir einkastæði í bílakjallara og þar eru einnig hjólageymsla og geymslur. Lyftur eru í öllum stigahúsum og gott aðgengi fyrir hjólastóla og barnavagna.
Í kjallara eru geymslur íbúðanna auk 62 bílastæða í bílageymslu. Ísorka ehf. og Austurbrú 10-18 húsfélag hafa gert með sér samning með rekstur hleðslukerfis fyrir rafbíla á sameiginlegu bílastæði með hugbúnað Ísorku ehf. 
Í heild er um að ræða 64 íbúðir að meðtöldum íbúðum úr húsum 16 og 18.

Byggingarnar sem rísa Hafnarstrætis megin á reitnum munu hýsa glæsilegt hótel búið veitingastað og kokteilbar. Það verður rekið af Hilton og verður innangengt á milli húsanna. 

Allar frekari upplýsingar, verðlista og tegundir íbúða má sjá með því að smella hér

Áætluð afhending: Sumar 2024
Framkvæmdaraðili: Pollurinn ehf. 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut). Kaupandi greiðir skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati þegar það leggst á eignina.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 

Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
olafur@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Byggð fasteignasala

Byggð fasteignasala

Skipagata 16, 600 Akureyri
phone
Byggð fasteignasala

Byggð fasteignasala

Skipagata 16, 600 Akureyri
phone