Lýsing
Íbúðin skiptist í forstofu, gang, rúmgóða stofu, tvö svefnherbergi, eldhús, baðherbergi og geymslu. Frábær fyrstu kaup í góðu og vinsælu hverfi fyrir litla fjölskyldu, örstutt frá Klambratúni og miðborginni. Allar nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson lgfs í síma 896-6020 eða á tölvupóstfanginu hallgrimur@trausti.is.
Íbúðin er 85,5 fm samkvæmt skráningu hjá HMS.
Nánari lýsing eignar:
Sérinngangur er inn í íbúðina.
Komið er inn á flísalagt anddyri með stórum fataskáp og þaðan inn á parketlagðan gang.
Á hægri hönd er svefnherbergi sem í dag er nýtt sem borðstofa og rúmgóð og björt stofa. Rennihurð er á milli svefnherbergis og stofu sem býður upp á fjölbreytta notkun. Parket er á gólfum.
Út úr stofunni er útgengt út í garðinn, út um nýuppsetta hurð.
Innar á ganginum er rúmgott svefnherbergi með fataskáp, parket á gólfi.
Eldhúsið er með nýrri snyrtilegri brúnni og hvítri innréttingu og parketi á gólfi.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni og sturtuklefa, nýlega endurgert.
Geymsla er innan íbúðarinnar.
Innangengt er í sameiginlegt þvottahús frá anddyri íbúðarinnar
Sameiginleg lóð, vel gróinn og snyrtilegur garður er við húsið.
Helstu framkvæmdir í íbúðinni og húsinu:
2018 var gólf í stofu og svefnherbergjum flotað, baðherbergi endurnýjað, settur nýr veggur utan um walk-in sturtu, skólp/klóak rör fóðrað, lagnir fyrir heitt og kalt vatn endurnýjað í baðherbergi og eldhúsi og sett nýtt harðparket á alla íbúðina.
2020 var svalahurð komið fyrir úr stofu í garðinn
2021 var þak endurnýjað
2023 var allt í eldhúsinu endurnýjað, sett nýtt ofnakerfi (ofnar, rör og hitaveitugrind), nýjar flísar og skápur í forstofu og skipt um alla rafmagns tengla
2025 var skipt um alla glugga og keyptur nýr fataskápur í svefnherbergi
Hér er frábær eign á ferðinni fyrir fyrstu kaupendur í grónu og vinsælu hverfi þar sem stutt er í alla þjónustu, skóla og leikskóla. Íbúðin hefur öll verið endurgerð á afar smekklegan og vandaðan hátt. Sjón er sögu ríkari, bókið skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.