Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Björgvin Þór Rúnarsson
Haukur Halldórsson
Vista
fjölbýlishús

Garðabraut 4

300 Akranes

73.900.000 kr.

513.908 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2100858

Fasteignamat

55.400.000 kr.

Brunabótamat

68.300.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1966
svg
143,8 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

***GARÐABRAUT 4 - 300 AKRANESI***

PRIMA Fasteignsala og Oliver Bergmann lögg.fasteignasali kynna:
Mjög svo glæsilega og mikið endurnýjaða 5. herbergja efri sérhæð með sérinngangi í klæddu fjórbýlishúsi. Samtals 143.8fm með suður svölum.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu sem og borðstofu með útgang út á suður svalir. Hjónaherbergi og 3 barnaherbergi. Baðherbergi, gestabaðherbergi, þvottahús og risloft/geymslu.

SJÁ MYNBAND AF EIGN / WALKTHROUGH VIDEO
SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA SKOÐUN / FÁ SENT SÖLUYFIRLIT

Nánari lýsing:
1.hæð: 
Sérinngangur af neðri hæð
Forstofa flísalögð með fatahengi.
Inn af forstofu er baðherbergi, flísalagt með hita í gólfi. Sturtuklefi með fibo tresbo baðplötum á vegg, upphengt klósett, innrétting og spegill með ljósi.
Teppalagður stigi upp á efri hæð ( stigapall )

2.hæð: 
Inn af stigapalli er þvottahús með flísum á gólfi og niðurfall. Stór innrétting með með vask og blöndunartækjum. Fyrir ofan þvottarhús er geymsluloft með niðurfellanlegum stiga og lýsingu.
Eldhús, stofa/borðstofa og sólstofa opin í alrými með stórri eyju. Hvít eldhúsinnrétting með kæli og frystiskáp, innbyggðum bakarofn, örbylgjuofn og uppþvottavél. Helluborð og háfur.
Hiti í gólfi á sólstofu og hurð út á suðursvalir í átt að Langasand. 
Svefnherbergisálma er stúkuð af ásamt aðalbaðherbergi með hurð á gangi.
Fjögur svefnherbergi með fataskápum í tveimur herbergjum og stórum skápum á gangi. 
Baðherbegið er endurnýjað með gólfhita og flísum á gólfi. Upphengt klósett, baðkar og sturta. Nýleg innrétting og spegill með ljósi.
Í kjallara er hjóla og vagnageymsla. Stór sameiginlegur afgirtur garður.
Húsið einangrað og klætt að utan með steni klæðningu.

Endurbætur á liðnum árum:
·       Svalir yfirbyggðar að hluta og sameinað íbúð sem sólstofa með gólfhita 2012
·       Járn á þaki endurnýjað 2013
·       Neysluvatnslagnir endurnýjaðar í böðum, þvottahúsi og eldhúsi 2014
·       Ný eldhúsinnrétting og tæki í eldhús 2015
·       Nýjar innihurðir 2015
·       Þvottarhús endurnýjað, flísar á gólf, ný innrétting, blöndunartæki og ofn 2018
·       Geymslu breytt í baðherbergi á neðri hæð. Ný sturta, upphengt klósett, blöndunartæki og innrétting 2018
·       Rafmagn endurnýjað af stærstum hluta, ný öryggi í töflu og skipt um rofa og tengla 2018
·       Aðalbaðherbergi endurnýjað, flísar og hiti í gólf, ný blöndunartæki, upphengt klósett, baðkar og innrétting 2019

Íbúðin er staðsett miðsvæðis á Akranesi stutt frá leikskóla, grunnskóla, íþróttasvæði, Langasandi og þjónustu. Enginn hússjóður.

Nánari upplýsingar veitir:
Oliver Bergmann löggiltur fasteignasali / s. 787 3505 / oliver@primafasteignir.is

__________________________________________________________________________________________

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Yfirlýsing seljanda:
Seljandi/eigandi lýsir því yfir að efni söluyfirlitsins er rétt samkvæmt bestu vitund hans og staðfestir það með undirritun sinni.

Prima fasteignasala ehf

Prima fasteignasala ehf

Suðurlandsbraut 6
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
16. jún. 2021
35.250.000 kr.
46.800.000 kr.
143.8 m²
325.452 kr.
20. ágú. 2020
36.650.000 kr.
41.500.000 kr.
143.8 m²
288.595 kr.
3. feb. 2011
17.950.000 kr.
14.900.000 kr.
132.9 m²
112.114 kr.
21. mar. 2007
15.870.000 kr.
19.000.000 kr.
132.9 m²
142.965 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Prima fasteignasala ehf

Prima fasteignasala ehf

Suðurlandsbraut 6