Lýsing
Glæsilegt 221 fm parhús á Selfossi með 4 rúmgóðum svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, stóru alrými, bílskúr, sólpalli og heitum potti. Gólfhiti og hitað bílaplan. Húsið var innréttað frá grunni 2018.
Til sölu: Glæsilegt og mjög rúmgott parhús við Tjarnarmóa 8, Selfossi
Eignin er steinsteypt og samtals 221 fm, þar af íbúð 187 fm og bílskúr 34 fm. Húsið var að mestu innréttað árið 2018 og er því nýleg og í mjög góðu ástandi. Hljóðeinangrandi dúkur er í öllu alrými auk þess að hurðir eru allar sérstaklega hljóðeinangrandi svo hljóðvistin í húsinu er einstaklega góð.
Tengiliður - BÓKAÐU SKOÐUN, SJÓN ER SÖGU RÍKARI!
- Netfang: tjarnarmoi8@gmail.com
- Sími: 853-3339 (Stefán)
Skipulag eignar:
- Rúmgott anddyri með stórum skápum.
- Eldhús og stofa í einu stóru alrými (um 80 fm)
- 4 rúmgóð svefnherbergi.
- 2 baðherbergi (annað með baði og skápaplássi, hitt með sturtu)
- Þvottahús með innréttingu og útgengi á pall.
- Bílskúr með millilofti að hluta fyrir geymslu.
Innréttingar og frágangur:
- Eldhús með góðri innréttingu og stórri granít borðplötu og granít vask - má leggja heitt á borðplötu.
- Rúmgóð svefnherbergi öll með góðum fataskápum.
- Harðparket á öllum gólfum nema flísar í baðherbergjum, þvottahúsi og anddyri.
- Gólfhiti í öllu húsinu og þráðlaus hitastýring.
- Upptekið loft í anddyri og alrými með innfelldum ljósum og hljóðeinangrandi loftadúk í alrými.
- Loftaþyljur í herbergjum, baðherbergjum og þvottahúsi.
Lóð og aðstaða:
- Hellulagt og hitað bílaplan sem rúmar 4 bíla að framan.
- Stór sólpallur með heitum potti og mjög einfaldri (on/off) stýringu.
- Geymsluloft í íbúð og í bílskúr.
Aukabúnaður:
- Snjalllýsing í eldhúsi og anddyri
- Hleðslustöð fyrir rafbíla
- Geymsluskúr á palli
- Hljóðeinangrandi dúkúr í lofti
- Sjálfvirk led næturljós við gólf
Þetta er einstaklega vel skipulagt mjög rúmgott og fallegt heimili á frábærum stað á Selfossi nálægt verslun og skóla
Fyrir fyrirspurnir, allar nánari upplýsingar eða til að bóka skoðun hafið samband við tjarnarmoi8@gmail.com eða í síma 853-3339 (Stefán)
Finndu frekari upplýsingar um eignina á www.e-fasteignir.is
- Söluyfirlit
- Senda fyrirspurn
- Tilboðsgerð
Vegna auglýsingar á vefsvæðinu fasteignir.is:
Eigendur auglýsa eign sína sjálfir án milligöngu og finna til kaupendur. Eigendur tryggja að löggiltur fasteignasali (eða aðili með löggildingu til að annast milligöngu um sölu fasteigna og skipa) annist milligöngu þegar kemur að kauptilboði og / eða kaupsamningsgerð vegna auglýsingar á vefsvæði Vísis (fasteignir.is). Þessi aðili mun þá sjá um skjalagerð, þ.m.t. söluyfirlit, kauptilboð, kaupsamning, veðleyfi og afsal, eftir því sem við á hverju sinni, og sjá um að annast viðskiptin í samræmi við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Þannig er tryggt að varnir gegn peningaþvætti séu virtar og að réttarstaða kaupanda og seljanda er glögg.
Eigendur geta nýtt sér umrædda þjónustu hjá samstarfsaðila e-fasteigna, PRIMA fasteignasölu, en það er ekki skilyrði fyrir notkun kerfisins og stendur aðilum aðeins til boða ef hún hentar öllum hlutaðeigandi.
Verðskrá þjónustunnar er aðgengileg á vef e-fasteigna.