Lýsing
Eignin Maríubakki 12 íbúð 0302 er skráð skv. Fasteignaskrá HMS 87,9 fm., þar af er 4,6 fm. geymsla í sameign.
Nánari lýsing:
Komið er inn í opið hol/forstofu með dúk á gólfi.
Alrými opnast inn í bjarta stofu með stórum gluggum í s-vestur.
Eldhús er dúklagt með eldri innréttingu, borðkrókur við glugga til norðurs með góðu útsýni.
Inn af eldhúsinu eru þvottahús með glugga og geymsla.
Stofa/Borðstofa: Stofan er rúmgóð með parketi á gólfi og útgengi á svalir í suðvestur með miklu útsýni yfir borgina.
Baðherbergi er flísalagt með baðkari með sturtuaðstöðu og nýlegri innréttingu og handklæðaofni.
Svefnherbergisgangur er með 3 herbergjum;
1. Hjónaherbergi með fataskáp og dúk á gólfi.
2. Herbergi með fataskápur og dúk á gólfi.
3. Herbergi erfyrir enda gangsins heldur minna,það er dúklagt.
Þetta er afar vel skipulögð íbúð með góðu birtuflæði og útsýni.
Í sameign á jarðhæð er sér geymsla íbúðarinanar - hún er 4,6 fm. þar er einnig sameiginleg vagna- og hjólageymsla.
Húsið lítur vel út að utan, það var málað, sprunguviðgert og þak endurnýjað árið 2019, og gler 2018.
Maríubakki er vel staðsettur neðarlega í Breiðholtinu þar sem verslun og þjónusta og góðar samgönguleiðir eru innan seilingar í Mjóddinni.
Allar frekari upplýsingar veitir Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasaki í s. 777-2882 eða thora@esjafasteignasala.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Esja fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.